Venni: Ég á mér þá ósk heitasta að hann spili með Þrótti í ár

Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Já, það er max hægt að fá þrjú stig fyrir leik, og við fengum þrjú stig“ sagði afmælisbarn dagsins, Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, eftir 1-0 sigur á Völsungi í Laugardalnum í dag.
„Þetta var torsótt. Fyrri hálfleikur var auðvitað bara eign okkar en ekkert sérstaklega mörg færi, erfitt að brjóta þá. Við komumst yfir þarna eitt núll, syndin var að aflífa ekki leikinn þá og fara í 2-0, 3-0. Því að svo kemur þetta síðasta korter þar sem að þeir hentu öllu fram og það var kominn smá skjálfti í okkar menn þar sem við náðum ekki að nýta okkar skyndiupphlaup til að hátta þennan leik,“ sagði hann svo.
Eins og Venni kom inn á féllu hans menn ansi neðarlega síðustu mínútur leiksins og aðspurður hvort það hafi verið skilaboð af bekknum að gera það eða hvort að það hafi verið ósjálfráð viðbrögð leikmanna segir hann:
„Þið klínið ekkert einhverju Tuchel á mig í þessari umfjöllun. Þetta er bara það sem gerist, þeir auðvitað taka mikla sénsa. Við sáum það þegar við hreinsuðum fram þá áttum við auðvitað að gera bara miklu betur í að, þegar við komumst í okkar upphlaup, búa til fleiri færi og auðvitað bara klára leikinn.“
Örn Bragi Hinriksson hefur síðustu daga verið orðaður við KR og ekki alveg orðið skýrt hvort hann klári tímabilið með Þrótturum eða fari í Vesturbæinn strax í þessum glugga.
„Það eina sem ég get sagt bara í hreinskilni er að ég vil auðvitað ekki missa Örn Braga. Frábær leikmaður og ég bara vona, ef ég skil þetta rétt þá er þetta ekki alveg algjörlega frágengið og ég á mér þá ósk heitasta að hann spili með Þrótti í ár og um ókomin ár."
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.




