Haddi um Djuric: Ég er bara ánægður að hann sé pirraður


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta svíður hjá öllum okkar sem þykir vænt um KA," sagði Hallgrímur Jónasson þjálfari KA eftir 3-1 tap fyrir Stjörnunni í dag.
„Við erum því miður búnir að tapa of mörgum leikjum núna og það er erfitt fyrir alla. Ef við tökum leikinn, þá var fyrri hálfleikurinn ekki alveg nógu góður. Mér fannst við ekki alveg nógu góðir í pressunni, aðeins hikandi og kannski smá sjálfstraustsleysi. Svo förum við inn í hálfleik og erum að tapa, búnir að skalla í slá og svona. Svo fannst mér seinni hálfleikurinn betri, við komum vel inn og skorum mark, og fáum færi. Manni leið bara þannig að ef við myndum skora, þá gætum við unnið þennan leik. Við fengum alveg tækifæri til þess en náðum því miður ekki að skora. Svo erum við aðeins opnir til baka í lokin, við förum með alla fram, þriðja markið skiptir engu máli fyrir þennan leik. Því miður þá töpuðum við, og við þurfum bara að gera betur. Ég þarf að gera betur, og þjálfarateymið, við þurfum að finna lausnir. Við erum búnir að vera með sama vandamálið í frekar langan tíma. Eftir að við lentum í áföllum í byrjun móts þá höfum við ekki fundið rétt jafnvægi í liðinu. Við förum frá því að fá rosa fá mörk á okkur í að fá allt of mörg mörk. Við þurfum að finna lausnir þar. Við tókum gott spjall inn í klefa áðan og ég var ánægður að sjá að menn eru sárir, menn eru niðurlútir, mönnum er ekki sama. Við þurfum að leggja okkur fram, við þurfum að finna lausnir, og við þurfum bara að snúa þessu við eins og við höfum gert áður," sagði Hallgrímur.
KA menn ætluðu alls ekki að vera þar sem þeir eru núna heldur mun ofar. Hallgrímur segist hins vegar ekki hafa miklar áhyggjur á því hvort starfið hans sé í hættu.
„Ég hef ekki fengið einn einasta fund með stjórninni um það, þannig þetta bara særir. Mér þykir mjög vænt um KA, ég er búinn að vera hérna í mörg ár og það eru fullt af strákum hérna búnir að vera í rosa mörg ár. Við erum búnir að gera frábæra hluti síðustu fimm ár saman. Auðvitað svíður þetta, ég vill standa mig betur, ég vil að KA standi sig betur, en ég veit líka alveg hver leiðin er þangað. Það er ekki að fara vorkenna sjálfum sér, ég þarf að finna lausnir, við leggjum okkur fram. Þeir sem horfðu á leikinn, í dag, allavega þeir sem sáu seinni hálfleikinn það er ekki eins og menn séu að gefast upp. Við erum að halda áfram, við erum að þrýsta á liðin. Flestir leikir tapast með einu mark, en við þurfum að finna betra jafnvægi á liðið. Þegar við gerum það þá verður erfitt að vinna fótboltaleiki. Það eru mínar áhyggjur í dag, frekar en að þið séuð að spyrja mig hvort að sætið mitt sé heitt," sagði Hallgrímur.
Danijel Dejan Djuric var bersýnilega mjög ósáttur þegar hann var tekinn af velli á 65. mínútu. Hallgrímur segist frekar ánægður að sjá hann ekki vera sama, heldur en annað.
„Ég er bara ánægður með að hann sé pirraður, ég er bara ekki búinn að spjalla við hann. Hann bara lagði sig fram, og ég valdi að taka hann útaf eins og aðra leikmenn, það bara skiptir engu máli. Ég er ekkert að spá í því, hann var ekki með neina stæla við okkur, hann bara settist niður og var pirraður væntanlega að við séum að tapa. Hann vill vinna eins og við allir, þannig það er ekkert mál," sagði Hallgrímur.


