Fotbolti.net
28.07.02 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð

Rivaldo til AC Milan (Staðfest)

Rivaldo er kominn til AC Milan og er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við félagið. Þetta var tilkynnt á heimasíðu félagssins í nótt. Sögusagnir um þetta hafa verið í ítölsku pressunni upp á síðkastið en nú er það orðið opinbert. Rivaldo hætti í síðustu viku hjá Barcelona og fékka að fara frítt frá félaginu þrátt fyrir að eiga eitt ár eftir af samningi sínum. Sivio Berlusconi eigandi AC Milan mun borga Rivaldo rúmar 400 milljónir króna á ári auk annarra bónusa sem eru ekki tilgreindir nánar. Eftir undirskriftina á samningnum sagði Rivaldo, ,,Ég hlakka til að mæta Inter Milan í nágrannaslagnum gegn félaga mínum Ronaldo. Hann er vinur minn, og við sýndum það á HM, en núna spilum við með sitthvoru ítalska félaginu. Ég held að fyrsti leikurinn milli AC og Inter Milan muni verða aðal aðdráttaraflið í ítölsku deildinni þetta árið." Lesendur munið, þið lásuð það fyrst á Fótbolti.net.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.