28.07.04 - 14:08
Emerson til Juventus (Staðfest)

Emerson hefur loksið náð að skipta um lið en hann skrifaði undir samning við Juventus áðan. Hann hefur viljað fara frá Roma í tæpt ár og var hann orðaður bæði við Chelsea og Real Madrid í sumar. En Juve menn hafa nú hreppt hann og talið er að kaupverðið sé nálægt 10 milljónum punda.
Luciano Moggi stjórnarmaður í Juventus sagði þetta við fjölmiðla í gærkvöldi: "Við höfum náð samkomulagi við Roma um kaupverðið á Emerson. Meira get ég ekki sagt."
Nú þegar þetta er frágengið ætla Roma menn að næla í Alberto Gilardino leikmann Parma. En Juventus hafa heldur aldrei farið leynt með áhuga sinn á Gilardino og munu þeir líklega reyna að kaupa hann. Real Madrid hafa ekki lenur áhuga á honum og hafa þeir snúið sér annað í sínum leikmannakaupum.