28.07.04 - 20:27
Magnús Már Einarsson
Portillo lánaður til Fiorentina (Staðfest)




Javier Portillo sóknarmaður Real Madrid hefur verið lánaður til ítalska liðsins Fiorentina og verður hann þar á láni eitt tímabil. Portillo sem að er 22 ára setti met í markaskorun í unglingaflokkum Real Madrid og kom fyrst fram á sjónarsviðið í aðalliðinu tímabilið 2002-2003. Á síðustu leiktíð skoraði hann hinsvegar aðeins eitt mark í deildinni og eftir að Fernando Morientes er kominn til baka úr láni frá AS Monaco er Portillo orðinn fjórði í goggunarröðinni í framherjastöðuna hjá Real Madrid, á eftir Ronaldo, Raul og Morientes.
"Þetta mun gefa mér tækifæri til að fá reynslu sem gerir mér kleift að snúa aftur til Real Madrid á næsta ári." Sagði Portillo við heimasíðu Real Madrid í dag.
