28.07.26 - 22:50
Ívan Guðjón Baldursson
3. deild: Toppliðið tapaði á heimavelli

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
Tindastóll 2 - 3 Höttur
0-1 Bjarki Nóel Brynjarsson ('32)
0-2 Þórhallur Ási Aðalsteinsson ('36)
1-2 Ariel Reinero ('53)
2-2 Matheus Bettio Gotler ('88)
2-3 Dennis Nieblas Moreno ('93)
0-1 Bjarki Nóel Brynjarsson ('32)
0-2 Þórhallur Ási Aðalsteinsson ('36)
1-2 Ariel Reinero ('53)
2-2 Matheus Bettio Gotler ('88)
2-3 Dennis Nieblas Moreno ('93)
Tindastóll og Höttur áttust við í eina leik kvöldsins í 3. deildinni og úr varð stórskemmtilegur slagur.
Heimamenn á Sauðárkróki gátu endurheimt fimm stiga forystu á toppi deildarinnar með sigri, en gestirnir frá Egilsstöðum voru ekki á sama máli og komust í tveggja marka forystu í fyrri hálfleik.
Bjarki Nóel Brynjarsson og Þórhallur Ási Aðalsteinsson skoruðu með stuttu millibili svo staðan var 0-2 í leikhlé. Ariel Reinero og Matheus Gotler náðu að jafna metin í gríðarlega spennandi síðari hálfleik sem endaði á dramatísku sigurmarki í uppbótartímanum, en þar var Dennis Moreno í gestaliði Hattar á ferðinni.
Tindastóll er með 31 stig eftir 15 umferðir og getur misst toppsætið ef Sandgerðingar sigra næsta leik. Höttur er um miðja deild með 19 stig.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víðir | 18 | +28 | 39 |
| 2 | Reynir S. | 18 | +19 | 36 |
| 3 | KH | 18 | +28 | 35 |
| 4 | Tindastóll | 18 | +13 | 35 |
| 5 | KV | 18 | +2 | 29 |
| 6 | KF | 18 | -5 | 23 |
| 7 | Höttur | 18 | -4 | 22 |
| 8 | Augnablik | 18 | -5 | 21 |
| 9 | Sindri | 18 | -11 | 20 |
| 10 | KÁ | 18 | -24 | 19 |
| 11 | Ýmir | 18 | -15 | 16 |
| 12 | Árbær | 18 | -26 | 8 |