Fotbolti.net
28.07.26 - 22:57
Ívan Guðjón Baldursson

4. deild: Sex mörk á Selfossi

4. deild: Sex mörk á Selfossi
Canon

Mynd: Árborg/Instagram

Árborg 3 - 3 Vængir Júpíters
0-1 Arnar Ragnars Guðjohnsen ('3)
1-1 Þorvarður Hjaltason ('15)
1-2 Máni Sævarsson ('27)
2-2 Gestur Helgi Snorrason ('31)
2-3 Fannar Bragason ('93)
3-3 Gestur Helgi Snorrason ('96, víti)
Það var mikið fjör er Árborg og Vængir Júpíters tókust á í 4. deildinni fyrr í kvöld. Liðin mættust á Selfossi og náðu gestirnir forystunni snemma leiks þegar Arnar Ragnars Guðjohnsen setti boltann í netið á þriðju mínútu.

Þorvarður Hjaltason jafnaði metin innan við stundarfjórðungi síðar og endurheimtu gestirnir svo forystuna með marki frá Mána Sævarssyni.

Gestur helgi Snorrason jafnaði nokkrum mínútum síðar og var staðan jöfn 2-2 í leikhlé. Hún hélst jöfn allt þar til í uppbótartíma venjulegs leiktíma, þegar Fannar Bragason gerði það sem hann hélt að væri sigurmark Vængjanna.

Heimamenn gáfust þó ekki upp og fengu dæmda vítaspyrnu stuttu seinna, sem Gestur Helgi skoraði úr. Lokatölur urðu því 3-3 eftir dramatísk mörk í uppbótartímanum.

Árborg er í þriðja sæti með 26 stig eftir 12 umferðir. Vængirnir eru með 12 stig, fjórum stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Álftanes14+3939
2Hamar14+4537
3Árborg14+3332
4Elliði14-320
5Úlfarnir14-416
6Vængir Júpiters14-1513
7KFR14-1712
8ÍH14-2110
9Hafnir14-3510
10Álafoss14-228
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.