Fotbolti.net
28.07.26 - 23:20
Ívan Guðjón Baldursson

Rio vill sjá skotmark Chelsea snúa aftur heim

Rio vill sjá skotmark Chelsea snúa aftur heim
Canon

Mynd: EPA

Manchester United goðsögnin Rio Ferdinand vill sjá Danny Welbeck, 35 ára framherja Brighton, skipta heim til Man Utd frekar heldur en til Chelsea.
Chelsea fær grænt ljós frá Henderson og Welbeck
TENGT EFNI

Chelsea fær grænt ljós frá Henderson og Welbeck

Ferdinand vill að Welbeck hafni Chelsea og semji við United, en hann er uppalinn hjá félaginu og tók sín fyrstu skref sem atvinnumaður undir stjórn Sir Alex Ferguson. Hann lék svo fyrir Arsenal og Watford áður en hann skipti yfir til Brighton og hefur verið iðinn við markaskorun á síðustu misserum.

Welbeck, sem á eitt ár eftir af samningi sínum við Brighton, skoraði 14 mörk í 40 leikjum á síðustu leiktíð.

„Welbs... hunsaðu þetta og komdu aftur heim," skrifaði Ferdinand á X. „Það er Meistaradeildarfótbolti á næstu leiktíð í Manchester."

Rio vill sjá skotmark Chelsea snúa aftur heim
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.