Bryndís Lára: 50 sinnum skemmtilegra en að taka á móti fyrsta lambi á vorin
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

„Ég myndi lýsa henni þannig að þetta er svona 50 sinnum skemmtilegra en að taka á móti fyrsta lambi á vorin,“ sagði Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir, markmaður Þórs/KA, sem tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn nú í dag með sigri á FH.
„Mér fannst þetta bara mjög verðskuldað. Við unnum inn flest stigin og þar af leiðandi er þetta verðskuldað.“
„Það var smá stress eftir Grindavíkurleikinn, ég viðurkenni það alveg. En Donni er held ég með þrjár háskólagráður í sálfræði þannig hann bara tók okkur niður á jörðina.“
Stúkan á Þórsvelli var troðfull og stuðningurinn til fyrirmyndar.
„Hann var geggjaður!“