28.09.23 - 18:19
Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið Fram og Keflavíkur: Raggi Sig í þriðja sinn í röð með sama lið

Raggi Sig heldur sig við sama byrjunarlið þriðja leikinn í röð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Oleksii Kovtun kemur inn hjá Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Raggi Sig heldur sig við sama byrjunarlið þriðja leikinn í röð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram og Keflavík mætast í Bestu-deild karla klukkan 19:15 í kvöld en leikið er í Úlfarsárdalnum. Byrjunarliðin eru klár og þau má sjá hér að neðan.
Lestu um leikinn: Fram 3 - 1 Keflavík
Fram gerði 2 - 2 jafntefli við ÍBV í eyjum í síðasta leik á laugardaginn og Ragnar Sigurðsson þjálfari liðsins gerir engar breytingar frá þeim leik og þetta er þriðji leikurinn í röð sem hann heldur sig við sama byrjunarlið því það var einnig eins í leiknum gegn HK.
Keflavík vann 2 - 1 heimasigur á HK í síðasta leik á sunnudaginn. Haraldur Freyr Guðmundsson þjálfari liðsins gerir eina breytingu frá þeim leik. Gunnlaugur Fannar Guðmundsson hefur afrekað það að fá 10 gul spjöld í sumar og er því í þriðja sinn í leikbanni í sumar fyrir gul spjöld. Í hans stað kemur Oleksii Kovtun.

Byrjunarlið Fram
- 1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
- 5. Delphin Tshiembe
- 7. Guðmundur Magnússon
- 10. Frederico Bello Saraiva
- 15. Breki Baldursson
- 17. Adam Örn Arnarson
- 26. Jannik Holmsgaard
- 27. Sigfús Árni Guðmundsson
- 28. Tiago Manuel Da Silva Fernandes
- 31. Þengill Orrason
- 32. Aron Snær Ingason
Byrjunarlið Keflavík
- 13. Mathias Brinch Rosenorn (m)
- 3. Axel Ingi Jóhannesson
- 4. Ígnacio Heras Anglada
- 5. Magnús Þór Magnússon (f)
- 6. Sindri Snær Magnússon
- 11. Muhamed Alghoul
- 16. Sindri Þór Guðmundsson
- 23. Sami Kamel
- 25. Frans Elvarsson (f)
- 26. Ísak Daði Ívarsson
- 50. Oleksii Kovtun

Oleksii Kovtun kemur inn hjá Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð