28.09.26 - 23:02
Brynjar Ingi Erluson
Leicester selur óvinsælan leikmann (Staðfest)

Wout Faes er farinn frá Leicester

Mynd: EPA

Wout Faes er farinn frá Leicester

Mynd: EPA
Enska C-deildarfélagið Leicester City hefur selt belgíska varnarmanninn Wout Faes til Shabab Al Ahli í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.
Faes er 28 ára gamall og kom til Leicester árið 2022, en féll með liðinu sama tímabil.
Hann hjálpaði félaginu aftur upp árið eftir áður en Leicester féll á ný niður um deild.
Á síðustu leiktíð spilaði hann fimmtán leiki með Leicester í B-deildinni, en náði sér aldrei almennilega á strik og var mikið gagnrýndur fyrir frammistöðuna.
Í janúar fór hann á láni til Mónakó en sneri aftur til Leicester í sumar. Þar spilaði hann aðeins einn leik, gegn Barnsley í síðustu umferð.
Faes var einn af launahæstu leikmönnum félagsins en framlagið lítið og Leicester hefur nú loks tekist að koma honum frá félaginu. Hann var seldur í dag til Shabab Al Ahli.
Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en stuðningsmenn Leicester hafa tekið tíðindunum fagnandi á samfélagsmiðlum.
Leicester hefur fallið niður um tvær deildir á tveimur árum og er nú í 14. sæti C-deildarinnar með aðeins níu stig eftir sjö leiki.

Wout Faes has joined UAE Pro League side Shabab AlAhli Dubai FC in a permanent deal, subject to international clearance ??
— Leicester City (@LCFC) September 28, 2026
???? https://t.co/gf2uJmePkq pic.twitter.com/XrkRvaj3NH