28.09.26 - 18:59
Brynjar Ingi Erluson
Neto aftur til Juventus (Staðfest)

Mynd: Juventus FC

Mynd: Juventus FC
Ítalska félagið Juventus hefur staðfest komu brasilíska markvarðarins Neto.
Neto er 37 ára gamall og var síðast á mála hjá Botafogo í Brasilíu, en hann rifti samningi sínum við félagið í sumar eftir afar erfiðan tíma þar.
Hann er nú kominn til Juventus út tímabilið og mun fylla skarð Kamil Grabara sem sleit krossband á æfingu á dögunum.
Þetta er í annað sinn sem Neto gengur í raðir Juventus, en hann lék með liðinu frá 2015 til 2017 og var þá varamarkvörður Gianluigi Buffon.
Á þeim tíma varð hann tvisvar ítalskur meistari, vann bikarinn jafnoft og komst með liðinu í úrslit Meistaradeildar Evrópu.

Ufficiale | Neto è un giocatore della Juventus ???
— JuventusFC (@juventusfc) September 28, 2026
Benvenuto! ????? https://t.co/1DrF0d1Ojh
Powered by @Jeep pic.twitter.com/biaXzu9ekU