Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 28. nóvember 2021 10:40
Aksentije Milisic
Helsta markmið Ronaldo að enda með fleiri Ballon d'Or bikara en Messi
Félagarnir.
Félagarnir.
Mynd: EPA
Stærsta markmið Portúgalska snillingsins Cristiano Ronaldo er að enda með flesta Ballon d'Or bikara í sögunni og ná að fara upp fyrir sinn helsta keppinaut, Lionel Messi.

Þetta segir Pascal Ferre, sem afhendir verðlaunin á hverju ári. Ronaldo hefur unnið fimm gullknetti og verið tilnefndur oftast í sögunni eða sautján sinnum. Messi hefur hins vegar unnið sex gullknetti.

Argentínumaðurinn er líklegastur til þess að hreppa verðlaunin í ár en ef það gerist mun það verða hans sjöundi bolti. Ronaldo vonast hins vegar eftir því að ná að jafna Messi.

„Ronaldo á eitt markmið og það er að leggja skónna á hilluna með fleiri Gullbolta en Lionel Messi," sagði Ferre.

Ronaldo mun ekki fá ósk sína uppfyllta en listinn sem lak út um daginn er réttur.

Á þeim lista var Lionel Messi sigurvegarinn, Karim Benzema í öðru sæti og Robert Lewandowski í því þriðja.
Athugasemdir
banner
banner