Fotbolti.net
27.11.26 - 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ítalska deildin

„Væri gaman að sjá Van Dijk hjá Milan"

„Væri gaman að sjá Van Dijk hjá Milan"
Canon

Mynd: EPA

Framtíð Virgil van Dijk hjá Liverpool er í óvissu en samningur hans við félagið rennur út næsta sumar.

Van Dijk hefur verið einn besti varnarmaður í heimi undanfarin ár en hann hefur unnið ensku deildina tvisvar og Meistaradeildina einu sinni með Liverpool.
Hann hefur verið orðaður við Milan en ítalska goðsögnin Fabio Cannavaro sagði í viðtali við Gazzetta dello Sport að hann hafi rætt við Van Dijk um ítölsku deildina á HM síðasta sumar.

„Ég hitti hann á HM og hann sagðist gjarnan vilja spila á Ítalíu. Hann er mjög heillaður af því. Það væri gaman að sjá hann hjá Milan," sagði Cannavaro.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.