Fotbolti.net
27.11.26 - 18:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Þórsarar staðfesta tíðindin um Vazquez

Þórsarar staðfesta tíðindin um Vazquez
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spænski miðjumaðurinn Kevin Vazquez hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við Þór.

Vazquez er 33 ára gamall og gekk til liðs við Þór í sumarglugganum á síðustu leiktíð. Hann var lykilmaður í liðinu sem tryggði sér áframhaldandi veru í Bestu deildinni eftir sigur á FH í lokaumferðinni.
Algjör lykilmaður að framlengja við Þór
TENGT EFNI

Algjör lykilmaður að framlengja við Þór

Liðið vann sex af þeim ellefu leikjum sem hann kom við sögu í, liðið vann alls níu leiki.

„Það gleður okkur því mikið að á komandi tímabili fáum við að njóta krafta hans frá fyrsta leik. Knattspyrnudeild Þórs fagnar því að Kevin verði áfram í Þorpinu og hlakkar til komandi tímabils með honum," segir í tilkynningu Þórs.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.