Fotbolti.net
27.11.26 - 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Félög horfa til Júlíusar eftir umspilið

Úr fyrri leiknum gegn Grikkjum.

Úr fyrri leiknum gegn Grikkjum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Júlíus Mar Júlíusson er leikmaður norska félagsins Kristiansund og var í nokkuð stóru hlutverki í norsku úrvalsdeidlinni framan af tímabili.

Júlíus er 22 ára miðvörður sem keyptur var frá KR í upphafi árs. Hann var fastamaður í liðinu hjá Kristiansund vel fram í október en í síðasta mánuði var hann á bekknum í fyrsta sinn og hefur komið inn á sem varamaður í síðutu þremur leikjum.

Tveir af þeim hafa unnst og hefur Júlíus hjálpað til við að sigla þeim stigum heim.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er áhugi frá nokkuð stórum félögum í Austurríki og Sviss á Júlíusi.

Júlíus byrjaði síðustu fimm leiki með U21 landsliðinu og stóð sig vel. Frammistaða hans í umspilinu gegn Grikkjum, þar sem Júlíus var með fyrirliðabandið, vakti athygli en hann stóð vaktina mjög vel í hjarta íslensku varnarinnar.
Kristiansund er í fallbaráttu, situr nú í fallumspilssæti þegar þrjár umferðir eru eftir.

Júlíus er uppalinn hjá Fjölni en var keyptur til KR eftir tímabilið 2024.
Eftir seinni leikinn.

Eftir seinni leikinn.

Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.