Fotbolti.net
27.11.26 - 10:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Danijel Djuric á förum frá KA

Danijel Djuric á förum frá KA
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Lengjudeildin
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru miklar líkur á því að Danijel Dejan Djuric sé á förum frá KA og hefur hann verið boðinn til annarra félaga.

Danijel var keyptur til KA frá króatíska félaginu Istra fyrir tímabilið í ár en náði alls ekki að sýna sitt besta í gula og bláa búningnum.

Hann lék vel með Víkingi áður en hann hélt til Króatíu fyrir einu og hálfu ári síðan, en fékk lítið að spila í Króatíu og sneri því aftur til Íslands.
Danijel, sem er 23 ára sóknarmaður, lagði upp fjögur mörk í 25 deildarleikjum í sumar, en hann byrjaði 15 þeirra.

Hann skrifaði undir samning út tímabilið 2028 en samkvæmt heimildum Fótbolta.net eru miklar líkur á því að hann færi sig um set í vetur og von er á frekari tíðindum á næstu dögum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.