Fotbolti.net
29.01.25 - 19:05
Brynjar Ingi Erluson

Byrjunarliðin í Meistaradeildinni: Níu breytingar á liði Liverpool - Raya ekki með Arsenal

Federico Chiesa byrjar hjá Liverpool

Federico Chiesa byrjar hjá Liverpool

Canon

Mynd: EPA

Lokaumferðin í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu fer fram klukkan 20:00 í kvöld og eru byrjunarliðin úr leikjunum komin í hús. Fótbolti.net verður með beina textalýsingu frá öllu því helsta sem gerist í leikjum kvöldsins.
Í beinni - Meistaradeildin: Man City komst áfram
TENGT EFNI

Í beinni - Meistaradeildin: Man City komst áfram

Manchester City þarf að vinna Club Brugge til að komast áfram í umspilið, en Pep Guardiola gerir tvær breytingar á liði sínu. Kevin de Bruyne og John Stones koma inn fyrir Abdukodir Khusanov og Omar Marmoush, sem mega ekki vera með City í þessu verkefni þar sem þeir eru ekki skráðir í Meistaradeildarhópinn.

Lið Man City gegn Club Brugge: Ederson, Nunes, Stones, Akanji, Gvardiol, Kovacic, Gundogan, De Bruyne (C), Bernardo, Foden, Haaland.

Arne Slot, stjóri Liverpool, gerir alls níu breytingar á byrjunarliði sínu gegn PSV Eindhoven. Liverpool hefur unnið alla sjö leiki sína og er búið að tryggja sig áfram í 16-liða úrslit.

Athygli vekur að vinstri bakverðirnir Andy Robertson og Kostas Tsimikas byrja báðir og þá er Jarell Quansah í vörninni. Federico Chiesa fær einnig að spreyta sig.

Lið Liverpool gegn PSV: Kelleher, Bradley, Quansah, Robertson, Tsimikas, Endo, McConnell, Chielsa, Elliott, Gakpo, Danns.

Spænski stjórinn Mikel Arteta er í svipuðum gír og Slot, en hann gerir fjölmargar breytingar á liðinu fyrir leikinn gegn Girona. Arsenal er svo gott sem komið áfram í 16-liða úrslit.

David Raya er ekki í hópnum og þá eru þeir Declan Rice, William Saliba og Kai Havertz allir á bekknum.

Lið Arsenal gegn Girona: Neto, Partey, Kiwior, Gabriel, Calafiori, Jorginho, Merino, Odegaard, Nwaneri, Sterling, Trossard

Aston Villa mætir liði Celtic. Unai Emery gerir aðeins eina breytingu frá leiknum um helgina en Tyrone Mings dettur út og inn kemur Lamare Bogarde. Ollie Watkins fær þá kallið fram yfir Jhon Duran, sem er líklega á leið til Sádi-Arabíu.

Lið Aston Villa gegn Celtic: Martinez, Cash, Konsa, Kamara, Digne, Bogarde, Tielemans, Bailey, Rogers, Ramsey, Watkins.

Íslenski landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson er á bekknum hjá Lille sem mætir Feyenoord á heimavelli. Lille er komið áfram í umspilið og á enn möguleika á að enda meðal átta efstu.
William Saliba er á bekknum hjá Arsenal

William Saliba er á bekknum hjá Arsenal

Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal8+1924
2Bayern8+1421
3Liverpool8+1218
4Tottenham8+1017
5Barcelona8+816
6Chelsea8+716
7Sporting8+616
8Manchester City8+616
9Real Madrid8+915
10Inter8+815
11Paris Saint Germain8+1014
12Newcastle8+1014
13Juventus8+413
14Atletico Madrid8+213
15Atalanta8013
16Bayer8-112
17Borussia D.8+211
18Olympiakos8-411
19Club Brugge8-210
20Galatasaray8-210
21Monaco8-610
22Qarabag8-810
23Bodo-Glimt8-19
24Benfica8-29
25Marseille8-39
26Pafos FC8-39
27St. Gilloise8-99
28PSV808
29Athletic8-58
30Napoli8-68
31FC Kobenhavn8-98
32Ajax8-136
33Eintracht Frankfurt8-114
34Slavia Praha8-143
35Villarreal8-131
36Kairat8-151
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.