22:25Takk fyrir samfylgdina í kvöld!Þetta var taumlaust stuð, nóg af mörkum, mistökum og spennandi sveiflum. Þetta er kannski það sem upp úr stendur:
- Liverpool endaði í efsta sæti á fyrsta tímabilinu í nýju fyrirkomulagi.
- Manchester City tókst að ná umspilssæti eftir að hafa verið undir í hálfleik gegn Club Brugge.
- Hákon Arnar og félagar í Lille komast beint í 8-liða úrslit.
- Aston Villa kemst beint í 16-liða úrslitin.
- Real Madrid náði ekki inn í topp átta og fer í umspilið.
- PSG fer í umspilið eftir að hafa rúllað yfir Stuttgart sem er úr leik.
22:17Lokastaðan í heild sinni
Mynd: Football Rankings
22:13LEIK LOKIÐ: Sporting 1-1 BolognaSporting Lissabon nær inn í umspilið en Bologna er úr leik.
0-1 Tommaso Pobega ('21 )
1-1 Conrad Harder ('77 )
22:12LEIK LOKIÐ: Stuttgart 1-4 PSGStuttgart er úr leik en PSG náði inn í umspilið.
0-1 Bradley Barcola ('6 )
0-2 Ousmane Dembele ('17 )
0-3 Ousmane Dembele ('35 )
0-4 Ousmane Dembele ('54 )
1-4 Chris Fuhrich ('77 )
22:11Leikirnir sem engu máli skiptuÞessi fjögur lið voru öll úr leik fyrir kvöldið.
Sturm 1 - 0 RB Leipzig
1-0 Arjan Malic ('42 )
Young Boys 0 - 1 Crvena Zvezda
0-1 Guelor Kanga ('69 )
22:08LEIK LOKIÐ: PSV 3-2 LiverpoolLiverpool endaði i efsta sæti þrátt fyrir tapið. PSV endaði í fjórtánda sæti og fer í umspilið.
0-1 Cody Gakpo ('28 , víti)
1-1 Johan Bakayoko ('35 )
1-2 Harvey Elliott ('40 )
2-2 Ismael Saibari ('45 )
3-2 Ismael Saibari ('45 )
Rautt spjald: Amara Nallo, Liverpool ('87)
22:07LEIK LOKIÐ: Lille 6-1 FeyenoordAlvöru frammistaða hjá Hákoni og félögum. Lille endar í sjöunda sæti og fer beint í 16-liða úrslit. Feyenoord kemst í umspilið þrátt fyrir niðurlægjandi tap í kvöld.
1-0 Osame Sahraoui ('4 )
1-1 Santiago Gimenez ('14 )
2-1 Gernot Trauner ('38 , sjálfsmark)
3-1 Angel Gomes ('57 )
4-1 Jonathan David ('74 )
5-1 Gernot Trauner ('76 , sjálfsmark)
6-1 Remy Cabella ('80 )
22:07LEIK LOKIÐ: Juventus 0-2 BenficaBæði lið fara í umspilið.
0-1 Vangelis Pavlidis ('16 )
0-2 Orkun Kokcu ('80 )
22:06LEIK LOKIÐ: Inter 3-0 MónakóInter endar í fjórða sæti en Mónakó fer í umspil.
1-0 Lautaro Martinez ('4 , víti)
2-0 Lautaro Martinez ('16 )
3-0 Lautaro Martinez ('67 )
Rautt spjald: Christian Mawissa, Monaco ('12)
22:06LEIK LOKIÐ: Girona 1-2 ArsenalArsenal endaði í þriðja sæti en Girona er úr leik.
1-0 Arnaut Danjuma ('28 )
1-1 Jorginho ('38 , víti)
1-2 Ethan Nwaneri ('42 )
1-2 Raheem Sterling ('90 , Misnotað víti)
22:04LEIK LOKIÐ: Dinamo Zagreb 2-1 AC MilanZagreb úr leik þrátt fyrir sigurinn. Milan fer í umspilið.
1-0 Martin Baturina ('19 )
1-1 Christian Pulisic ('53 )
2-1 Marko Pjaca ('60 )
Rautt spjald: Yunus Musah, Milan ('39)
22:03LEIK LOKIÐ: Brest 0-3 Real MadridBæði lið fara í umspilið. Brest í 18. sæti en Real Madrid í 11. sæti.
0-1 Rodrygo ('27 )
0-2 Jude Bellingham ('56 )
0-3 Rodrygo ('78 )
22:02Club Brugge fagnar þrátt fyrir tap gegn Manchester CityBelgarnir ná 24. sætinu, síðasta umspilssætinu.
22:00LEIK LOKIÐ: Dortmund 3-1 Shaktar DonetskDortmund fer í umspilið en Shaktar er úr leik.
1-0 Serhou Guirassy ('17 )
2-0 Serhou Guirassy ('44 )
2-1 Marlon Gomes ('50 )
3-1 Ramy Bensebaini ('79 )
21:58LEIK LOKIÐ: Barcelona 2-2 AtalantaBarcelona endar í öðru sæti en Atalanta í níunda og fer í umspilið. Atalanta rétt missir af beinu sæti í 16-liða úrslitum.
1-0 Lamine Yamal ('47 )
1-1 Ederson ('67 )
2-1 Ronald Araujo ('72 )
2-2 Mario Pasalic ('79 )
21:58LEIK LOKIÐ: Leverkusen 2-0 Sparta PragLeverkusen tekur sjötta sætið. Sparta Prag er úr leik.
1-0 Florian Wirtz ('32 )
2-0 Nathan Tella ('64 )
21:57LEIK LOKIÐ: Aston Villa 4-2 CelticAston Villa tekur áttunda sætið og fer beint í 16-liða úrslitin. Celtic á leið í umspilið.
1-0 Morgan Rogers ('3 )
2-0 Morgan Rogers ('5 )
2-1 Adam Idah ('36 )
2-2 Adam Idah ('38 )
3-2 Ollie Watkins ('60 )
3-2 Ollie Watkins ('67 , Misnotað víti)
4-2 Morgan Rogers ('90 )
21:55LEIK LOKIÐ: RB Salzburg 1 - 4 Atletico MadridSalzburg minnkaði muninn í lokin. Atletico Madrid búið að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum en Salzburg er úr leik.
0-1 Giuliano Simeone ('5 )
0-2 Antoine Griezmann ('13 )
0-3 Antoine Griezmann ('45 )
0-4 Marcos Llorente ('63 )
1-4 Adam Daghim ('90 )
21:54LEIK LOKIÐ: Bayern München 3-1 Slovan BratislavaBayern á leið í umspilið en Bratislava kveður Meistaradeildina.
1-0 Thomas Muller ('8 )
2-0 Harry Kane ('63 )
3-0 Kingsley Coman ('84 )
3-1 Marko Tolic ('90 )
21:52MARK! Aston Villa 4-2 CelticMorgan Rogers að innsigla þrennu sína!
21:51MARK! Girona 1-3 ArsenalRaheem Sterling að skora af vítapunktinum.
21:51MÖRK! Lille 6-1 FeyenoordLille að fara á kostum! Hákon virtist skora fimmta markið hjá Lille en því miður skráist það sem sjálfsmark.
21:49MARK! Bayern München 3-1 Slovan BratislavaSlóvakarnir minnka muninn. Sárabótamark.
21:49LEIK LOKIÐ: Man City 3-1 Club BruggeManchester City er komið í umspilið. Endurkomusigur!
0-1 Raphael Onyedika ('45 )
1-1 Mateo Kovacic ('53 )
2-1 Joel Ordonez ('62 , sjálfsmark)
3-1 Savinho ('77 )
21:45MARK! Juventus 0-2 BenficaOrkun Kökcü tvöfaldar forystu Benfica.
21:45MARK! Bayern München 3-0 Slovan Bratislava</b>Kingsley Coman að skora.
21:41MARK! Brest 0-3 Real MadridRodrygo skorar sitt annað mark.
21:41MARK! Dortmund 3-1 Shaktar Donetsk</b>Ramy Bensebaini skoraði fyrir Dortmund.
21:40MARK! Lille 4-1 FeyenoordJonathan David að skora fjórða mark Lille. Frakkarnir eru á leið í 16-liða úrslitin.
21:40MARK! Sporting Lissabon 1-1 BolognaConrad Harder jafnar fyrir heimamenn.
21:39MARK! Barcelona 2-2 AtalantaMario Pasalic jafnar fyrir Atalanta.
21:37<b>MARK! Inter 3-0 Mónakó</b>ÞRENNA!
Lautaro Martínez með þrennu.
21:35VAR! Girona 1-2 ArsenalGirona jafnar á 77. mínútu en þetta var rangstaða. Eftir VAR skoðun. Arsenal áfram í forystu.
21:33MARK! Young Boys 0-1 Rauða StjarnanÞað eru komin mörk í öllum leikjum. Varamaðurinn Guelor Kanga skoraði fyrir Serbana.
21:33MARK! Man City 3-1 Club BruggeSavinho!!! - City nennir ekki að detta út úr Meistaradeildinni. Huggulegt mark hjá Savinho.
21:32MARK! Barcelona 2-1 Atalanta</b>Ronald Araújo með skalla eftir hornspyrnu.
21:32MARK! Lille 3-1 Feyenoord - Hákon kominn innáAngel Gomes kom Lille í 3-1 og var svo tekinn af velli á 63. mínútu. Inn fyrir hann kom Hákon Arnar Haraldsson.
21:31MARK! Leverkusen 2-0 Sparta PragNathan Tella skoraði annað mark Leverkusen.
21:30Watkins rann á punktinum!Aston Villa enn 3-2 yfir. Ollie Watkins rann á punktinum og klúðraði vítaspyrnu, tók tvær snertingar og skaut hátt yfir. Óbein aukaspyrna.
21:29MARK! RB Salzburg 0-4 Atletico MadridLlorente skorar. Flóðgáttir opnar í Austurríki.
21:26MARK! Barcelona 1-1 AtalantaFRÁBÆRT MARK HJÁ ATALANTA! Brasilíumaðurinn Éderson með geggjað skot!
21:25Aston Villa fær vítaspyrnuBrotið á Ollie Watkins
21:23MARK! Dinamo Zagreb 2-1 AC MilanDinamo er manni fleiri og mark yfir. Marko Pjaca sem kom Króötunum yfir.
21:23MARK! Bayern München 2-0 Slovan BratislavaHarry Kane kemur bæjurum í 2-0.
21:23MARK! Brest 0-2 Real MadridJude Bellingham tvöfaldar forystu Madrídinga.
21:22Mörkunum er að rigna núna...
21:21MARK! Aston Villa 3-2 CelticÞetta er fljótt að breytast! Ollie Watkins hefur komið Aston Villa yfir á 60. mínútu.
21:21MARK! Dinamo Zagreb 1-1 AC MilanAC Milan hefur jafnað. Christian Pulisic, bandaríski landsliðsmaðurinn.
21:18MARK! Man City 2-1 Club BruggeMANCHESTER CITY HEFUR SNÚIÐ LEIKNUM VIÐ OG ER Á LEIÐINNI ÁFRAM!
Ekvadorinn Joel Ordónez með sjálfsmark og skyndilega er City á leiðinni áfram. Allt annað að sjá City í seinni hálfleiknum.
21:17RAUTT! Dinamo Zagreb - MilanYunus Musah, leikmaður Milan, fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt á 39. mínútu. Þetta fór framhjá mér áðan.
21:16MARK! Stuttgart 0-4 PSGOusmane Dembele er kominn með þrennu! Fær að eiga boltann!
21:15VAR! Brest 0-1 Real MadridÞað er búið að taka markið af Brest! Rangstaða. Real Madrid er enn í forystunni.
21:13MARK! Dortmund 2-1 Shaktar DonetskÚkraínumennirnir minnka muninn eftir hræðileg mistök hjá markverði Dortmund. Marlon Gomes skoraði.
21:13MARK! Brest 1-1 Real MadridÞetta er óvænt! Brest var að jafna! Ludovic Ajorque skoraði.
21:11Staðan er 0-0 í Young Boys - Rauða Stjarnan. En það er öllum drullusama. Leikur sem engu máli skiptir og stemningin eftir því.
21:09MARK! Man City 1-1 Club BruggeMateo Kovacic jafnar á 52. mínútu. En betur má ef duga skal. City VERÐUR að vinna! Kraftmikið mark sem kveikir kannski betur á heimamönnum.
21:07MARK! Barcelona 1-0 AtalantaBarcelona er komið á topp Meistaradeildarinnar - Lamine Yamal skoraði á 47. mínútu
21:03Man City í dauðafæri!John Stones skallar framhjá úr algjöru dauðafæri! Þarna hefði City átt að jafna gegn Club Brugge. 0-1 er staðan. Þess má geta að Savinho kom inn af bekknum hjá City í hálfleik.
21:02Brettið upp ermar!Seinni hálfleikur er farinn í gang!
20:58Stærstu fréttirnar: Man City er á útleiðÞetta er rosalegt kvöld! Allt í gangi. Stærstu fréttirnar eru þær að Manchester City er á útleið úr Meistaradeildinni. Meistararnir í Real Madrid eru á leið í umspil eins og staðan er. Lille er á leið beint í 16-liða úrslit en Aston Villa í umspil. Svo eitthvað sé nefnt!
20:55Staða efstu liða í hálfleik
Mynd: livescore
20:53MARK! Salzburg 0-3 Atletico MadridGriezmann með annað mark sitt og þriðja mark Madrídinga.
Það er kominn hálfleikur í öllum leikjum.
20:51MARK! PSV 3-2 LiverpoolÍ blálok uppbótartímans kemst PSV yfir! Þetta skráist sem sjálfsmark Conor Bradley.
20:47MARK! Sturm Graz 1-0 RB LeipzigArjan Malic ('42)
20:47MARK! Dortmund 2-0 Shaktar DonetskSerhou Guirassy með sitt annað mark og annað mark Dortmund.
20:47MARK! PSV 2-2 LiverpoolIsmael Saibari hefur jafnað í Eindhoven.
20:45MARK! Man City 0-1 Club BruggeRaphael Onyedika ('45)
Manchester City er á útleið. Liðið þarf að vinna Club Brugge til að komast áfram og nú er ljóst að liðið þarf að skora amk tvö til að koma sér í umspilið!
20:45RISATÍÐINDI AÐ DETTA INN...
20:43MARK! Girona 1-2 ArsenalEthan Nwaneri hefur komið Arsenal yfir. Strákurinn ungi skoraði á 42. mínútu.
20:42MARK! Lille 2-1 FeyenoordSjálfsmark frá Gernot Trauner og Lille er komið yfir að nýju!
20:41MARK! PSV 1-2 LiverpoolHarvey Elliott skorar eftir sendingu Chiesa á 40. mínútu og Liverpool hefur endurheimt forystuna.
20:40MARK! Aston Villa 2-2 CelticAdam Idah skoraði á 36. og svo aftur á 38. mínútu!!!
Á einu augabragði hefur Celtic jafnað og Aston Villa er dottið úr topp átta og alla leið í 13. sætið! Senur!
20:40<b>MARK! Girona 1-1 Arsenal</b>Jorginho að jafna af vítapunktinum.
20:39VAR: Barcelona 0-0 AtalantaMark Atalanta tekið af eftir VAR skoðun. Rangstaða.
20:38MARK! Aston Villa 2-1 CelticSkotarnir minnka muninn.
20:35MARK! Stuttgart 0-3 PSGDembele með sitt annað mark
Frakkarnir að slátra Stuttgart. Þjóðverjarnir eru á leið úr keppni.
20:35MARK! PSV 1-1 LiverpoolJohan Bakayoko ('35)
PSV hefur jafnað.
20:34MARK! Bayer Leverkusen 1-0 Sparta PragFlorian Wirtz, hinn afar öflugi leikmaður að skora á 33. mínútu.
20:33MARK! Brest 0-1 Real MadridRodrygo ('27)
Evrópumeistararnir eru komnir í forystuna!
20:32Staðan í topp átta núna!
Mynd: BBC
20:29MARK! Girona 1-0 ArsenalArnaut Danjuma ('28)
20:28MARK! PSV 0-1 LiverpoolCody Gakpo skoraði úr vítaspyrnu á sínum gamla heimavelli.
20:28MARK! Sporting Lissabon 0-1 BolognaTommaso Pobega að koma Bologna yfir. Sporting í 24. sæti og Bologna í 27. sæti. Þetta er á algjörum bláþræði hjá Sporting.
20:26Man City 0-0 Club BruggeManchester City er enn á útleið eins og staðan er núna! City verður að vinna.
20:25MARK! Dinamo Zagreb 1-0 AC MilanMartin Baturina ('19)
Hrikaleg mistök í vörn AC Milan! Fyrsta markið komið í Zagreb!
20:24MARK! Dortmund 1-0 Shaktar DonetskSerhou Guirassy ('17)
Dortmund kemur sér upp í topp átta.
20:22MARK! Stuttgart 0-2 PSGOusmane Dembele tvöfaldar forystuna fyrir PSG!
20:18MARK! Lille 1-1 FeyenoordSantiago Giménez ('14)
Hollendingarnir jafna í Lille.
20:18MARK! Juventus 0-1 BenficaVangelis Pavlidis ('17)
Benfica tekur forystu í Tórínó. Benfica er í 16. sæti en Juventus í 20. sæti.
20:17MARK! Inter 2-0 MónakóLautaro Martínez með sitt annað mark
Ekki lengi að nýta sér liðsmuninn!
20:16RAUTT! Inter 1-0 MónakóMónakó er marki undir og manni færri! Christian Mawissa var að fá rautt spjald. Inter er í fjórða sæti en Mónakó í því tíunda.
20:14MÖRK! RB Salzburg 0-2 Atletico Madrid0-1 Giuliano Simeone ('5)
0-2 Antoine Griezmann ('13)
Madrídingar komnir tveimur mörkum yfir og eru þægilegir í fimmta sæti deildarinnar.
20:12MARK! Bayern München 1-0 Slovan BratislavaThomas Müller ('8)
Gæti trúað því að þetta verði langt kvöld fyrir vini mína frá Bratislava!
20:09MARK! Lille 1-0 FeyenoordOsame Sahraoui ('4)
Lille er í áttunda sæti eins og staðan er núna.
20:08MARK! Inter 1-0 MónakóLautaro Martínez úr víti ('4)
20:07MARK! Stuttgart 0-1 PSGBradley Barcola ('6)
Frakklandsmeistararnir byrja vel í Þýskalandi!
20:06MARK! Aston Villa 2-0 CelticMorgan Rogers ('5)
Þvílík byrjun hjá Villa! Rogers með glæsilegt skot frá vítateigsendanum og skorar sitt annað mark! Emery og lærisveinar byrja þetta af rosalegum krafti!
20:04MARK! Aston Villa 1-0 CelticMorgan Rogers ('3)
Hans fyrsta Meistaradeildarmark! Fyrsta mark kvöldsins kom í Birmingham. Aston Villa er á leið í topp átta.
20:04
Mynd: Getty Images
Jayden Danns er yngstur til að spila sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir Liverpool í Evrópuleik. 19 ára og 13 daga gamall.
20:02Blys í BrestSmá tafir á að flautað sé til leiks í Brest - Real Madrid. Blys í stúkunni og skyggni á öðrum helmingi vallarins er ekkert. Dómarinn bíður aðeins með að blása í flautuna.
20:00Það hefur verið flautað til leiks!Hvar kemur fyrsta markið?
19:58Stuð um alla álfuna!!! Þetta er að fara af staðÞetta eru leikirnir - Góða skemmtun
20:00 Aston Villa - Celtic
20:00 Barcelona - Atalanta
20:00 Leverkusen - Sparta Prag
20:00 Dortmund - Shakhtar D
20:00 Brest - Real Madrid
20:00 Dinamo Zagreb - Milan
20:00 Bayern - Slovan
20:00 Salzburg - Atletico Madrid
20:00 Girona - Arsenal
20:00 Inter - Mónakó
20:00 Juventus - Benfica
20:00 Lille - Feyenoord
20:00 Man City - Club Brugge
20:00 PSV - Liverpool
20:00 Sturm - RB Leipzig
20:00 Sporting - Bologna
20:00 Stuttgart - PSG
20:00 Young Boys - Rauða stjarnan
19:53Líkurnar á að Man City komist áframTölfræðifyrirtkið Opta gefur Manchester City 63,8% líkur á því að vinna Club Brugge og komast þar með í umspilið. Það eru nokkrar mínútur í að flautað verði til leiks á öllum átján völlunum!!!
19:48Raya eitthvað meiddurMikel Arteta, stjóri Arsenal, sagði í viðtali fyrir leikinn gegn Girona að Raya markvörður væri að glíma við einhver meiðsli. Hann segir að ef einhver eigi skilið tækifæri sé það Neto sem stendur milli stanganna í sínum fyrsta leik fyrir Arsenal. Kom frá Bournemouth í fyrra.
Arsenal er svo gott sem öruggt með sæti í 16-liða úrslitum.
19:40Bayern - Bratislava: Tel byrjarMathys Tel (19) hefur mikið verið á bekknum hjá Bayern en byrjar í kvöld. Leikmaðurinn ungi vill yfirgefa Bayern og hefur verið orðaður við Chelsea og Manchester United.
19:34Innlit í klefa Man City
19:19Stuttgart - PSG: Samið um jafntefli?Stuttgart - Paris Saint-Germain er einn áhugaverðasti leikur kvöldsins. Liðin eiga á hættu að detta úr leik. Ef þau gera jafntefli munu bæði liðin komast áfram. Staða sem UEFA vildi forðast með því að láta alla leikina fara fram á sama tíma. Er jafntefli í kortunum?
19:10Af hverju er Man City í þessari stöðu?Við munum auðvitað beina góðum hluta af okkar athygli að Manchester City. Liðið þarf að vinna til að komast áfram.
29.01.2025 07:30Man City gæti fallið úr leik í Meistaradeildinni - „Einbeittum okkur að deildinni"
Úrslitin hjá City í keppninni hingað til:Man City 0-0 Inter
Slovan Bratislava 0-4 Man City
Man City 5-0 Sparta Prag
Sporting 4-1 Man City
Man City 3-3 Feyenoord
Juventus 2-0 Man City
PSG 4-2 Man City
19:04Lille - Feyenoord: Hákon á bekknumLille á möguleika á að enda í topp átta en athygli vekur að Hákon Arnar Haraldsson og Jonathan David byrja báðir á bekknum hjá franska liðinu.
19:02Brest - Real Madrid: Luka Modric byrjarCarlo Ancelotti gerir þrjár breytingar frá 3-0 sigri gegn Valladolid. Bakverðirnir Lucas Vazquez og Ferland Mendy snúa aftur í liðið og Luka Modric kemur á miðsvæðið í stað Dani Ceballos. Aurelien Tchouameni leikur áfram sem miðvörður.Vinicius Junior er meiddur.
19:00Girona - Arsenal: Neto í markinuArsenal er svo gott sem öruggt með sæti í 16-liða úrslitum. Neto byrjar í markinu. Jacob Kiwior, Jorginho, Ethan Nwaneri og Raheem Sterling byrja allir.
18:57PSV - Liverpool: Nítján ára framherjiHinn nítján ára gamli Jayden Danns byrjar í fyrsta sinn fyrir aðallið Liverpool. Alls eru níu breytingar sem Slot gerir frá 4-1 sigrinum gegn Ipswich. Cody Gakpo byrjar í sinni heimaborg.
18:55Man City - Club Brugge: De Bruyne byrjarMan City verður að vinna Belgana. Tvær breytingar á byrjunarliðinu frá sigrinum gegn Chelsea um síðustu helgi. John Stones og Kevin de Bruyne koma inn fyrir Abdukodir Khusanov og Omar Marmoush sem verða löglegir í Meistaradeildinni í útsláttarkeppninni.
18:52Aston Villa - Celtic: Watkins byrjarByrjunarliðin eru farin að detta inn og við skoðum valin byrjunarlið. Hjá Aston Villa er Ollie Watkins að byrja gegn Celtic. Í dag var greint frá því að Arsenal hefðu gert tilboð í Watkins.
18:45Það skiptir máli hvar þú endar í töflunniÁ þessari útskýringarmynd BBC má sjá hvernig 16-liða úrslitin munu raðast upp. Sem dæmi þá mun Liverpool leika gegn liði úr 15.-18. sæti.

Mynd: BBC
18:38Liverpool hvílir marga gegn PSV 29.01.2025 09:24Margir lykilmenn Liverpool hvíldir
Níu aðalliðsleikmenn Liverpool voru eftir heima; Alisson, Virgil van Dijk, Ibrahima Konate, Trent Alexander-Arnold, Ryan Gravenberch, Alexis Mac Allister, Dominik Szoboszlai, Mo Salah og Luis Díaz.
Það er öruggt að Liverpool endar í fyrsta eða öðru sæti deildarinnar, eitt stig tryggir toppsætið.
„Það skiptir engu máli hvort við endum númer eitt eða tvö. Á endanum verður dregið um mótherja. Við munum auðvitað gera allt sem við getum til að vinna leikinn," segir Arne Slot, stjóri Liverpool.
18:33Leikirnir sem eru dauðir og grafnir!16 af 18 leikjum kvöldsins skipta máli. Það eru bara tvær viðureignir sem engu máli skipta og við munum lítið pæla í þeim í þessari fréttavakt. Sturm Graz - Leipzig og Young Boys - Rauða Stjarnan. Ekkert af þessum liðum á möguleika á að komast áfram.
18:29Farið að hitna í kolunum!Jæja, um 90 mínútur í að flautað verði til leiks! Það kom upp eldur áðan í matarvagni við Etihad völlinn, þar sem Man City tekur á móti Club Brugge. Það er búið að slökkva eldinn og engan sakaði. Þetta mun því ekki hafa nein áhrif á leikinn sjálfan.
17:00Nýja fyrirkomulagið er snilld 29.01.2025 11:00„Ekki segja það upphátt en þetta fyrirkomulag er snilld“
„Af 18 leikjum sem hefjast allir á sama tíma í kvöld þá er eitthvað í húfi í 16 af þeim. Framtíðin er ekki ljós hjá 27 af 36 liðum. Hvað getur maður verið óánægður með?" segir Lewis Steele blaðamaður hjá Daily Mail.
„Það eru margar spurningar óráðnar. Ef Manchester City vinnur er liðið komið áfram, jafntefli eða tap og það er úr leik. Mun Aston Villa ná í topp átta eða þarf það að sætta sig við umspil? Hvar endar Arsenal? Burt séð frá ensku liðunum er ýmislegt annað áhugavert. Þrátt fyrir að hafa pakkað City saman þá gæti Paris Saint-Germain fallið úr leik ef liðið tapar gegn Stuttgart." 17:00Manchester City þarf á sigri að halda 28.01.2025 12:45Þetta þurfa ensku liðin í lokaumferð Meistaradeildarinnar
Liverpool hefur þegar tryggt sér sæti í topp átta.
Aston Villa mun að minnsta kosti fara í umspilið. Ef liðið vinnur Celtic á heimavelli eru góðar líkur á að liðið endi í topp átta en þá þarf eitt af fimm liðum fyrir ofan að misstíga sig.
Arsenal er svo gott sem öruggt með sæti í 16-liða úrslitum en liðið er þremur stigum fyrir ofan umspilssæti og með miklu betri markatölu en liðin sem hafa 13 stig.
Manchester City fer í umspilið ef liðið vinnur Club Brugge á heimavelli. Ef City vinnur ekki þá er liðið úr leik. City á ekki möguleika á að enda í topp átta.
17:00Þetta eru leikir kvöldsins20:00 Aston Villa - Celtic
20:00 Barcelona - Atalanta
20:00 Leverkusen - Sparta Prag
20:00 Dortmund - Shakhtar D
20:00 Brest - Real Madrid
20:00 Dinamo Zagreb - Milan
20:00 Bayern - Slovan
20:00 Salzburg - Atletico Madrid
20:00 Girona - Arsenal
20:00 Inter - Mónakó
20:00 Juventus - Benfica
20:00 Lille - Feyenoord
20:00 Man City - Club Brugge
20:00 PSV - Liverpool
20:00 Sturm - RB Leipzig
20:00 Sporting - Bologna
20:00 Stuttgart - PSG
20:00 Young Boys - Rauða stjarnan
Örugg með að enda í topp átta: Liverpool, Barcelona
Örugg með að enda í umspili að minnsta kosti: Arsenal, Inter, Atletico Madrid, AC Milan, Atalanta, Bayer Leverkusen, Aston Villa, Mónakó, Feyenoord, Lille, Brest, Borussia Dortmund, Bayern München, Real Madrid, Juventus, Celtic
Óvissa með áframhaldandi þátttöku: PSV, Club Brugge, Benfica, PSG, Sporting, Stuttgart, Manchester City, Dinamo Zagreb, Shakhtar Donetsk
Þegar fallin úr leik: Bologna, Sparta Prag, Leipzig, Girona, Rauða Stjarnan, Sturm Graz, Salzburg, Slovan Bratislava, Young Boys
17:00Partíkvöld framundan!Hér munum við fylgjast grannt með stemningunni þegar lokaumferð hinnar nýju deildarkeppni Meistaradeildarinnar fer fram! Allir leikirnir hefjast á sama tíma klukkan 20:00 og það er feikileg spenna!
Átta efstu liðin fara beint í 16-liða úrslit en liðin í sætum 9-24 í umspil. Liðin þar fyrir neðan ljúka þátttöku sinni í Evrópu.