Undanfarna daga höfum við á Fótbolta.net fengið íslenska stuðningsmenn félaga í ensku úrvalsdeildinni til að velja draumalið sinna félaga. Síðasta föstudag valdi Leifur Garðarsson draumalið sitt hjá Everton.
Leifur valdi Gylfa Þór Sigurðsson og þrjá aðra með honum á miðjuna. Leifur skildi hins vegar Leon Osman utan liðsins og bað hann Osman afsökunar á því á Twitter.
Osman sá tístið og svaraði Leifi. Hann skrifaði: „Frábært lið en ég held samt að það sé pláss þarna," sagði miðjumaðurinn fyrrverandi léttur.
Osman kom upp úr akademíu Everton og spilaði með félaginu allan sinn feril, fyrir utan lánsdvalir hjá Carlisle og Derby County.
Great team to be fair... still think there’s a space.... 😳😂😂😂
— Leon Osman (@Osman21Leon) March 29, 2020
Athugasemdir