Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 29. mars 2023 19:12
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Robertson svarar Rodri: Fórum ekki yfir strikið
Mynd: EPA

Rodri miðjumaður spænska landsliðsins var ekki sáttur með leikstíl skoska landsliðsins en liðin mættust í gær þar sem Skotland hafði 2-0 sigur í undankeppni EM 2024.


Hann sagði að þeir hafi verið grófir og reynt að tefja eins og þeir gátu.

Andy Robertson bakvörður skoska liðsins svaraði gagnrýninni í viðtali við ViaPlay eftir leikinn.

„Þeir fóru niður nokkuð auðveldlega. Við ætluðum alltaf að láta finna fyrir okkur, vildum pressa þá vel, vinna skallabolta og tæklingar og mér fannst við gera það," sagði Robertson.

„Mér fannst við ekki fara yfir strikið. Þeir voru rúllandi um grasið aðeins of mikið, sérstaklega í fyrri hálfleik. Þeir notuðu reynsluna og náðu að fiska spjöld á nokkra."


Athugasemdir
banner
banner
banner