Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 29. júlí 2022 21:40
Ívan Guðjón Baldursson
Inter ætlar ekki að samþykkja tilboð Chelsea í Casadei
Casadei á æfingu.
Casadei á æfingu.
Mynd: Getty Images

Sky á Ítalíu heldur því fram að Chelsea sé búið að leggja fram tilboð til að reyna að kaupa Cesare Casadei frá Inter.


Casadei er 19 ára sókndjarfur miðjumaður og talinn mikið efni. Sky segir Chelsea hafa boðið um 8 milljónir evra fyrir táninginn og mun Inter að öllum líkindum hafna því tilboði.

Casadei skoraði 13 mörk og gaf 4 stoðsendingar í 29 deildarleikjum í unglingadeildinni á Ítalíu auk þess að skora tvö og leggja eitt upp í sjö leikjum í Evrópukeppni unglingaliða.

Chelsea reyndi að fá Casadei til sín þegar Romelu Lukaku var lánaður út til Inter en það gekki ekki upp og reynir enska félagið nú aftur að krækja í þennan framtíðarleikmann.

Casadei á 7 mörk í 21 leik fyrir unglingalandslið Ítalíu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner