03.10.26 - 10:35
Brynjar Ingi Erluson
Szoboszlai: Kerkez er ekki skarpasti hnífurinn í skúffunni

Kerkez og Szoboszlai eru miklir mátar

Mynd: EPA

Kerkez og Szoboszlai eru miklir mátar

Mynd: EPA
Dominik Szoboszlai, fyrirliði ungverska landsliðsins, var stoltur af sínum manni Milos Kerkez sem tryggði liðinu 1-0 sigur á Georgíu í Þjóðadeildinni í gær.
Þeir félagarnir eru liðsfélagar bæði hjá Liverpool og í landsliðinu og miklir mátar.
Kerkez skoraði sigurmarkið með skalla eftir fyrirgjöf frá hægri og fagnaði markinu innilega.
Eftir leikinn kom Szoboszlai með ansi skemmtileg ummæli um vin sinn í viðtali.
„Þetta er það síðasta sem ég hefði búist við af honum, en ég er ánægður fyrir hans hönd að hafa skorað sitt fyrsta landsliðsmark fyrir Ungverjaland.“
„Þetta sýndi hversu mikið þetta þýddi fyrir hann og þó hann sé ekki alltaf skarpasti hnífurinn í skúffunni þá leggur hann hjarta og sál í allt sem hann gerir á vellinum,“ sagði Szoboszlai eftir leikinn.