03.10.26 - 10:53
Brynjar Ingi Erluson
Í banni gegn Frökkum eftir heimskulegt spjald

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Kevin de Bruyne, sem skoraði tvennu í 3-0 sigri Belgíu á Tyrkjum, verður ekki með gegn Frakklandi í næsta leik eftir að hafa fengið heimskulegt gult spjald undir lok leiksins.
De Bruyne sýndi að hann er langt frá því dauður úr öllum æðum og skoraði tvö góð mörk.
Þegar um tíu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma fékk hann gult spjald fyrir viðbrögð eftir brot. Það reyndist dýrkeypt því hann fer nú í eins leiks bann vegna uppsafnaðra gulra spjalda.
Það er því ljóst að hann verður ekki með í mikilvægum leik gegn Frökkum.
Mark van Bommel, þjálfari belgíska landsliðsins, telur að De Bruyne hafi líklega ekki áttað sig á afleiðingunum.
„Kevin var einfaldlega mjög pirraður og ég held að hann hafi ekki einu sinni áttað sig á afleiðingunum af þessu gula spjaldi,“ sagði Van Bommel.
Staðan í riðlinum er þannig að Frakkar eru á toppnum með sjö stig, en Belgar í öðru sæti með sex eftir þrjá leiki.