03.10.26 - 11:18
Brynjar Ingi Erluson
Samkomulag í höfn og verkfallinu lokið

Úr leik hjá Sydney FC, sem leikur í A-deildinni í Ástralíu

Mynd: EPA

Fótboltasamband Ástralíu hefur náð samkomulagi við dómarasamband landsins fyrir komandi tímabil, en meðlimir þess höfðu verið í verkfalli í mánuð. Óttast var að sækja þyrfti dómara erlendis frá fyrir fyrstu leiki tímabilsins ef samningar næðust ekki.
Dómarasambandið fór í verkfall vegna óánægju með fyrirkomulagið í kringum dómgæslu í áströlsku deildunum.
Ástralska fótboltasambandið sá um dómaramál í bikarkeppninni og úrslitakeppninni, en sérstakt fyrirkomulag var í gildi fyrir leiki í áströlsku úrvalsdeildunum.
Dómarasamtökin töldu að þar gætu skapast hagsmunaárekstrar þar sem deildunum er stjórnað af félögunum sjálfum. Þau vildu þess í stað að dómarar væru aðeins samningsbundnir fótboltasambandinu, sem er sjálfstæð stofnun.
Nú hefur náðst tímabundið samkomulag fyrir komandi tímabil og verður verkfallinu því aflýst. Viðræður halda síðan áfram um langtímalausn.
Dómararnir fengu það í gegn að verða samningsbundnir fótboltasambandinu, en APL mun áfram bera allan kostnað sem tengist dómgæslu í leikjum deildarinnar.
„Dómarar eru ótrúlega mikilvægir meðlimir leiksins og við erum ánægðir að fótboltasambandið, APL og dómarasamtökin hafi náð saman um að leiðina fram á við í áströlsku dómgæslunni,“ sagði Martin Kugeler, forseti ástralska fótboltasambandsins.
Nýtt tímabil hefst þann 16. október hjá körlunum en degi síðar hjá konunum.

A statement from Football Australia CEO Martin Kugeler on establishing a shared refereeing framework for the 2026/27 season alongside the Australian Professional Leagues (APL) and Professional Football Referees Australia (PFRA).
— Football Australia (@FootballAUS) October 2, 2026
???? Read more: https://t.co/qKc4bjGQsC pic.twitter.com/KJoy45ikQi