29.07.26 - 10:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Glugginn í neðri deildum lokar í dag - Félög að styrkja sig

Birgir Steinn klárar tímabilið í HK.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi Stefánsson er kominn með leikheimild með Víkingi.

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

Birgir Steinn klárar tímabilið í HK.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Félagaskiptagluggarnir í flestum deildum á Íslandi loka í dag. Gluggarnir í Bestu deild karla og Bestu deild kvenna eru hins vegar áfram opnir og verða opnir út 12. ágúst.
Allavega þrjú félög í Lengjudeildinni eru að fá inn leikmenn í dag. HK er að fá varnarmanninn Birgi Stein Styrmisson frá KR, Grindavík er að fá sóknarmanninn Arnar Breka Gunnarsson frá ÍBV og Aron Skúla Brynjarsson sem rifti við Leikni á dögunum, og Vestri er að fá spænska miðjumanninn Marcos Campos.
Í toppbaráttu 2. deildar náðu Haukar í hinn efnilega Breka Frey Ágústsson frá Breiðabliki, Fjölnir hefur sótt þrjá leikmenn og Selfoss kallaði Gest Helga Snorrason til baka frá grönnunum í Árborg.
Í Bestu deildinni eru einnig tíðindi því varnarmaðurinn Sölvi Stefánsson er kominn með leikheimild hjá Víkingi eftir að hafa fengið félagaskipti frá AGF. Hann gæti því verið í hóp í næsta deildarleik liðsins, en hann er að snú aftur á völinn eftir krossbandsslit.

Af heimasíðu KSÍ
KSÍ vill minna félög á að félagaskiptagluggi fyrir Lengjudeildir karla og kvenna, 2. deild karla, 2. deild kvenna, 3., 4. og 5. deild karla, utandeild karla og yngri flokka lokar 29. júlí 2026.
Félög eru hvött til að ganga frá félagaskiptum tímalega svo tryggt sé að þau gangi í gegn fyrir lokun gluggans. Við alþjóðleg félagaskipti er mikilvægt að öll gögn í FIFA TMS séu rétt og fullnægjandi og að dvalar- og atvinnuleyfi liggi fyrir þegar það á við.
Sérstaklega er bent á að félagaskiptabeiðnir fyrir leikmenn utan EES verða ekki sendar af stað nema gild dvalar- og atvinnuleyfi hafi verið afhent skrifstofu KSÍ. Ekki er nægjanlegt að umsókn sé til afgreiðslu hjá stjórnvöldum.
Samkvæmt gr. 20.4 í reglugerð KSÍ um félagaskipti, samninga og stöðu leikmanna og félaga getur KSÍ í ákveðnum tilvikum gefið út keppnisleyfi eftir lokun gluggans, enda hafi félagaskiptabeiðni verið stofnuð og öllum nauðsynlegum gögnum verið skilað fyrir lok gluggans.
Athygli er vakin á því að félagaskiptagluggi Bestu deildar karla og kvenna er opinn til 12. ágúst 2026.