Fotbolti.net
29.07.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Franski boltinn

Man City leiðir kappið um Bouaddi

Man City leiðir kappið um Bouaddi
Canon

Mynd: EPA

Manchester City leiðir kapphlaupið um Ayyoub Bouaddi, ungstirni Lille og marokkóska landsliðsins, sem er gríðarlega eftirsóttur í sumar.
Evrópumeistararnir hætta við Bouaddi
TENGT EFNI

Evrópumeistararnir hætta við Bouaddi

Paris Saint-Germain, Real Madrid og Arsenal eru meðal félagsliða sem hafa verið orðuð við Bouaddi, en Fabrizio Romano segir að Manchester sé líklegasti áfangastaðurinn.

Man City er í viðræðum við Lille um kaupverð og virðast aðilar vera að nálgast samkomulag. Það á þó eftir að ákveða hvort Bouaddi skipti strax til City eða fái annað tímabil á láni hjá Lille áður en hann kemur.

Bouaddi er 18 ára miðjumaður sem er mikilvægur hlekkur í sterku landsliði Marokkó og byrjunarliði Lille.

Talið er að Lille vilji fá um 100 milljónir evra fyrir ungstirnið sitt.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.