Fotbolti.net
29.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Jörgensen fer frá Chelsea til Strasbourg

Jörgensen fer frá Chelsea til Strasbourg
Canon

Mynd: EPA

Danski markvörðurinn Filip Jörgensen er á leið til Strasbourg frá systurfélaginu Chelsea eftir tvö ár í London.
Vill fara frá Chelsea
TENGT EFNI

Vill fara frá Chelsea

Jörgensen var aðalmarkvörður hjá Villarreal áður en Chelsea keypti hann sumarið 2024 fyrir 20 milljónir punda, en honum tókst ekki að hirða byrjunarliðssætið af Robert Sánchez hjá Chelsea.

Hann lék þó 36 leiki fyrir Chelsea, flesta í bikarkeppnum, og vildi skipta um félag til að fá meiri spiltíma.

Jörgensen er 24 ára og með langtímasamning við Chelsea sem gildir til sumarsins 2031. Ekki er greint frá því hvort Strasbourg kaupi markvörðinn eða fái hann á lánssamningi með sérstöku kaupákvæði.

Félagaskiptin munu ganga í gegn á næstu dögum þar sem Jörgensen hefur þegar yfirgefið æfingabúðir Chelsea til að skrifa undir í Frakklandi.

Jörgensen bætist því við gífurlega langan lista leikmanna sem hafa skipt á milli Chelsea og Strasbourg síðan félögin hafa verið undir sama eignarhaldi.
Jörgensen fer frá Chelsea til Strasbourg
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.