Nenad: Þurfum að vinna fjóra eða fimm af sex síðustu leikjunum

Nenad Zivanovic þjálfari Ægis

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Nenad Zivanovic þjálfari Ægis

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Einn leikur fór fram í 16.umferð Lengjudeildarinnar þar sem Ægir fékk Njarðvík á GeoSalmo völlinn í Þorlákshöfn. Leiknum lauk með 1-0 tapi Ægismanna í kröftugum og nokkuð jöfnum leik.
„Þetta er mjög erfitt fyrir okkur, mjög slöpp byrjun. Áður en við fengum markið gáfum við þeim dauðafæri. Þeir hefðu getað skorað tvö mörk í viðbót fyrstu fimmtán mínúturnar."
Ægisliðið hefur hingað til fengið flest mörk á sig og meðal annars talaði Nenad um að eftir síðasta leik hjá Ægir að þeir væru búnir að fá á sig 4 mörk í þremur síðustu fyrri hálfleikjum. En í dag hleypa þeir einu marki á 90.mínútum. „Ég held að það sé ekkert jákvætt ef að við töpum leiknum, en já ef við notum það sjónarhorn þá fengum við vissulega ekki 4 í einum hálfleik eða 5-6mörk á okkur í leiknum."
Liðinu gekk brösulega að skapa sér færi og hvað þá góð færi gegn nokkuð hári og mjög sterkri vörn Njarðvíkur hér í kvöld. „Þetta virkaði ekki, við vorum aðeins að spila, áttum fyrirgjafir, bolta inn fyrir varnarlínuna og þeir gáfu okkur tvo bolta sem við gátum ekki nýtt okkur. Það vantaði uppá orkuna á síðasta þriðjung, gæði og viljan. En þá meina ég á síðasta þriðjung ef ég tala um leikinn í heildina þá og tek út fyrstu fimmtán mínúturnar þá get ég ekki kvartað út í leikmenn mína, börðust og reyndu allt en Njarðvík var einfaldlega betra liðið.
Ægir situr á botni Lengjudeildarinnar með 8stig og sex leiki eftir til að bjarga sér frá falli. „Þetta er erfitt að sjálfsögðu. Í sextán leikjum unnum við tvo. Núna í sex leikjum þurfum við að vinna fjóra eða fimm. Að sjálfsögðu er allt mögulegt í fótbolta og meðan að við eigum séns munum við ekki gefast upp en þetta verður virkilega erfitt."
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
