Fotbolti.net
29.07.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Ungstirni Real Madrid frá keppni þar til í september

Ungstirni Real Madrid frá keppni þar til í september
Canon

Mynd: EPA

Miðjumaðurinn efnilegi Thiago Pitarch varð fyrir meiðslum á fyrstu æfingu Real Madrid á undirbúningstímabilinu og verður frá keppni næstu vikurnar.
Bætti þrjátíu ára gamalt met Raúl
TENGT EFNI

Bætti þrjátíu ára gamalt met Raúl

Pitarch missir af fyrstu leikjum Real Madrid í ágúst og er búist við að hann verði klár í slaginn í byrjun september.

Pitarch, sem verður 19 ára gamall eftir næstu helgi, kom öflugur inn í liðið hjá Real Madrid undir stjórn Álvaro Arbeloa á síðustu leiktíð. Hann kom við sögu í 6 leikjum í Meistaradeildinni og 10 í spænsku deildinni og gaf tvær stoðsendingar. Þær komu báðar í 4-2 sigri gegn Athletic Bilbao í lokaumferðinni í maí.

Hann er lykilmaður í U19 landsliði Spánverja og sýndi flotta takta á köflum með meistaraflokki Real Madrid.
Ungstirni Real Madrid frá keppni þar til í september
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.