Fotbolti.net
29.07.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalski boltinn

Roma borgar 35 milljónir fyrir nýjan framherja

Roma borgar 35 milljónir fyrir nýjan framherja
Canon

Mynd: EPA

Argentínski framherjinn Santiago Castro er lentur í Róm þar sem hann gengst undir læknisskoðun og skrifar undir samning fyrir félagaskipti sín frá Bologna.
Ætla ekki að virkja ákvæðið fyrir Evan Ferguson
TENGT EFNI

Ætla ekki að virkja ákvæðið fyrir Evan Ferguson

Castro er 21 árs gamall og kom með beinum hætti að 15 mörkum í 51 leik með Bologna á síðustu leiktíð. Gian Piero Gasperini þjálfari Roma er mjög hrifinn af honum og borga Rómverjar að minnsta kosti 35 milljónir evra til að ganga frá skiptunum.

Þá fer úkraínski framherjinn Artem Dovbyk í hina áttina. Hann fer frá Roma á láni til Bologna út tímabilið. Dovbyk er 29 ára gamall og átti mikið vonbrigðatímabil á síðustu leiktíð sem einkenndist af meiðslavandræðum.

Castro verður annar leikmaðurinn sem Roma kaupir í sumar eftir að hafa nýtt kaupákvæði í lánssamningi Donyell Malen.

Hann hefur skorað 4 mörk í 10 leikjum með yngri landsliðum Argentínu og reynir fyrir sér í Meistaradeildinni í haust.
Roma borgar 35 milljónir fyrir nýjan framherja
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.