28.07.26 - 22:20
Hafþór Örn Laursen
Jóhann Kristinn: Mér gæti ekki verið meira sama
Auglýsing

Jóhann Kristinn, þjálfari Þróttar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhann Kristinn, þjálfari Þróttar

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur fékk í heimsókn Víking í 13. umferð Bestu Deildar kvenna og leikar enduðu 1-1. Jóhann Kristinn, þjálfari Þróttar, var fenginn í viðtal eftir leik.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 1 Víkingur R.
„Ég er hræddur um að leikurinn hafi spilast eins og ég bjóst við. Það er aðeins munur á orkubyrgðunum hjá liðunum tveimur sem mættust í dag.''
„Ég er stoltur af stelpunum í dag, við spiluðum erfiðan leik í bikarnum fyrir stuttu síðan og það var ástand yfir helgina, bæði þreytu- og meiðslalega og mér finnst aðdáunarvert að við kláruðum þennan leik á 90 mínútum.''
Þróttur keppti gegn Víking í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins fyrir rúmum mánuði og vann 1-0. Jói var spurður hvort honum fannst þetta líkur leikur og hann.
Nei, þetta var það ekki. Við hefðum getað gert betur með meiri orku og á boltanum gerðum við klaufaleg mistök án pressu. Ég ætla ekki að gera neinar afsakanir, menn geta lesið í það eins og þeir vilja og mér gæti ekki verið meira sama en með fullan tank af orku hefðum við unnið.''
Katie Cousins og Bríet Fjóla komu við sögu í dag, en þær spiluðu báðar sinn annan leik fyrir Þrótt í kvöld.
„Ég er mjög ánægður með þær báðar og koma báðar í raun eftir meiðsli. Katie spilaði aðeins lengur en planað var og hún lét sig hafa það, Bríet er líka öll að koma til baka og tekur stærra hlutverk ef svona gengur áfram.''
Þróttur spilar sinn næsta leik gegn Stjörnunni þann 6. ágúst á Stjörnuvellinum.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum fyrir ofan.