Fotbolti.net
28.07.26 - 23:11
Snæbjört Pálsdóttir

Enn eitt jafnteflið - „Allir leikir sem við vinnum ekki heima eru töpuð stig"

Auglýsing
Óskar Smári Haraldsson var ánægður með varnarleik Stjörnunnar en svekktur að ná ekki öllum þremur stigunum.

Óskar Smári Haraldsson var ánægður með varnarleik Stjörnunnar en svekktur að ná ekki öllum þremur stigunum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn

Óskar Smári Haraldsson, þjálfari Stjörnunnar, var svekktur eftir markalaust jafntefli gegn Grindavík/Njarðvík í Bestu deild kvenna í Garðabæ í kvöld.

Stjarnan hélt hreinu og svaraði þar með fyrir þungan skell gegn FH í síðustu umferð. Óskar var ánægður með ýmislegt í frammistöðu liðsins en sagði það vonbrigði að hafa ekki unnið á heimavelli.

Lestu um leikinn: Stjarnan 0 - 0 Grindavík/Njarðvík

„Svekktur að vinna ekki á heimavelli og svekktur að við skyldum ekki skora. Þetta eru blendnar tilfinningar því ég er ánægður með margt sem við gerðum, ánægður með varnarleikinn og viðbrögðin eftir fyrri hálfleikinn." 

„En fyrst og fremst held ég að svekkelsi sé aðalatriðið. Við erum á heimavelli og þetta er í fimmta skipti sem við spilum við Grindavík/Njarðvík á þessu ári og alltaf verður jafntefli.“


Leikurinn var mikill baráttuleikur og Óskar fékk gult spjald á hliðarlínunni og var ósáttur við dómgæsluna á kafla í leiknum.

„Það safnaðist upp pirringur hjá mér og mælirinn fylltist. Mér fannst vera hallað verulega á okkur á kafla í leiknum.“

„Eftir leikinn töluðum við bara saman og sættumst á það að vera ósammála. Dómarar eru partur af leiknum og ég ber virðingu fyrir þeirra störfum. Ég tek gula spjaldið á mig.“


Stjarnan byrjaði leikinn vel en Grindavík/Njarðvík tók völdin þegar leið á fyrri hálfleikinn. Óskar var ósáttur við þann kafla en ánægður með hvernig liðið brást við eftir hlé.

„Ég var mjög ósáttur með stóran part fyrri hálfleiks og lét stelpurnar alveg vita af því. Mér fannst vera ruglingur í pressunni.“

„Svo í seinni hálfleik fannst mér við taka yfir leikinn og vera líklegri til að vinna hann. Þær löguðu fullt af hlutum í hálfleik og ég er ánægður með stelpurnar fyrir það.“


Þrátt fyrir að stigið gæti reynst mikilvægt þegar upp verður staðið var afstaða Óskars skýr.

„Mér finnst þetta vera tvö töpuð stig. Allir leikir sem við vinnum ekki heima finnst mér vera töpuð stig og mér mun alltaf finnast það.“

„Þetta er okkar heimili. Hér erum við alla daga, hér líður okkur ógeðslega vel og hér spilum við okkar fótbolta hvað best.“

„Við þurfum örugglega að sættast á að enn eitt jafnteflið sé niðurstaðan og að það sé örugglega sanngjarnt. Þegar við lítum til baka eftir tímabilið mun þetta stig örugglega vera ágætis verðmæti.“


Sjáðu allt viðtalið í spilaranum hér fyrir ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.