29.07.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Liverpool í forgangi hjá Barcola

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Franski kantmaðurinn Bradley Barcola er falur í sumar og eru mörg af stærstu félögum Evrópu á höttunum eftir honum.

TENGT EFNI
Þurfa að slá metið til að landa Barcola
Arsenal, Chelsea, FC Bayern og Liverpool eru meðal áhugasamra félagsliða en Evrópumeistarar Paris Saint-Germain eru sagðir vilja meira en 150 milljónir evra fyrir leikmanninn sinn.
Liverpool hefur lengi haft áhuga á Barcola og spurðist einnig fyrir um leikmanninn í fyrrasumar. Þá var verðmiðinn undir 100 milljónum en PSG ákvað að hækka hann eftir gott tímabil og mikinn hasar á leikmannamarkaðinum á upphafi sumars.
Barcola er gríðarlega spenntur fyrir Liverpool og er með félagið í forgangi framyfir önnur félög. Kantmaðurinn er að bíða eftir að félagsliðin komist að samkomulagi um kaupverð, en hann er með tvö ár eftir af samningi.
Einhverjir fjölmiðlar segja að hann hafi neitað að fara í viðræður við Chelsea til að bíða eftir að Liverpool næði samkomulagi við PSG.

Viðræður um Barcola í burðarliðnum

Mynd: EPA