Fotbolti.net
29.08.22 - 15:50
Elvar Geir Magnússon

Allir Bæjarar með bjór nema Mane

Allir Bæjarar með bjór nema Mane
Canon

Mynd: Getty Images

Í komandi mánuði fer Októberfest af stað í Þýskalandi og það er mikil spenna í Bæjaralandi.

Árlega fara leikmenn Bayern München í myndatöku af þessu tilefni og skála í bjór eins og venja er á hátíðinni.

Sadio Mane, sem kom frá Liverpool í sumar, var með í myndatökunni, klæddur í 'lederhosen', en vildi þó ekki halda bjór. Mane drekkur ekki en það er í samræmi við trú hans, hann er múslimi.
Allir aðrir á myndinni eru með bjór, þar á meðal Paul Wanner sem er sextán ára gamall. Samfélagsmiðlar hér á Íslandi færu líklega á flug ef íslenskt fótboltalið myndi leika sama leik og Bayern.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.