Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 29. ágúst 2022 16:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tvennan skilaði Kristal í lið vikunnar í fyrsta sinn
Kristall Máni Ingason.
Kristall Máni Ingason.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristall Máni Ingason átti stórleik í gær þegar Rosenborg tapaði gegn Tromsö í norsku úrvalsdeildinni.

Hann kom sér á blað hjá sínu nýja félagi með tveimur mörkum.

Í fyrra markinu gerði hann mjög vel með góðu hlaupi inn á teiginn og seinna markið gerði hann úr vítaspyrnu. áður en hann fór af velli um fimmtán mínútum fyrir leikslok.

Hann er með tvö mörk í fyrstu fjórum deildarleikjum sínum með Rosenborg sem er í fjórða sæti norsku úrvalsdeildarinnar þessa stundina með 37 stig.

Kristall vakti athygli fyrir sína frammistöðu og er auðvitað í liði vikunnar í norsku úrvalsdeildinni.

Um er að ræða flotta byrjun hjá Kristal í Noregi en hægt er að sjá lið umferðarinnar í heild sinni hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner