Fotbolti.net
29.08.26 - 20:05
Guðmundur Jónasson

Ágúst Hlyns: Ekki besti leikurinn fyrir augað

Auglýsing
Ágúst Eðvald leikmaður Þórs

Ágúst Eðvald leikmaður Þórs

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þór Akureyri unnu góðan sigur á ÍBV í dag og Fótbolti.net náði tali af Ágústi Eðvald eftir leikinn.

Ágúst Eðvald 66 mínútur í dag gegn ÍBV og lagði mikið í leikinn eins og venjulega.

Fótbolti.net var á staðnum eftir leik og ræddi við Ágúst.

Hvernig eru viðbrögðin eftir leik?

„Ekkert eðlilega sáttur að fá þrjú stig í Eyjum í dag, hrikalega mikilvægt fyrir okkur."

Hvernig fannst þér leikurinn spilast?

„Þetta var ekkert besti leikurinn fyrir augað, við vissum að við værum að fara í alvöru stríð hér í Eyjum. Við fáum á okkur víti í fyrri hálfleik sem var skellur en þeir klikka og við skorum svo fljótlega eftir það og svo sigldum við þessu bara heim."

Ertu bjartsýnn fyrir framhaldinu?

„Já, þetta gefur okkur klárlega mikið boost í næsta leik gegn FH á heimavelli og ætlum okkur bara þrjú stig þar og fara svo á bullandi siglingu í síðustu 5 leikina."

ÍBV 0 - 1 Þór

0-0 Vicente Rafael Valor Martínez ('30 , misnotað víti)

0-1 Sigfús Fannar Gunnarsson ('45 )

Rautt spjald: Bjarni Guðjón Brynjólfsson, Þór ('83) Lestu um leikinn

Þór eru komnir upp úr fallsæti með þessum sigri og sitja í 10.sæti einu stigi á undan ÍBV en KA á leik til góða og geta sent Þórsara aftur niður í fallsæti með sigri.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.