Fotbolti.net
28.08.26 - 23:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Skoraði þrennu í kvöld og er eftirsóttur af félögum í Bestu

Skoraði þrennu í kvöld og er eftirsóttur af félögum í Bestu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Aron Snær Ingason gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu í öruggum 7-2 sigri Þróttar á Ægi í 21. umferð Lengjudeildarinnar. Auk þess lagði hann upp fyrsta mark Þróttar í leiknum.

Aron er 24 ára sóknarmaður sem er á lokaári samningi síns við Þrótt og samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa félög í Bestu deildinni áhuga á því að fá hann í sínar raðir.

Fótbolti.net fjallaði um áhuga Vals í vor en þá hafnaði Þróttur tilboði Valsara. Hlíðarendafélagið hefur áfram áhuga á kappanum og samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa fleiri félög í deildinni mikinn áhuga.
Aron Snær hefur skorað ellefu mörk í sumar og lagt upp fjögur. Níu af mörkunum hafa komið í síðustu átta leikjum.

Hann er uppalinn hjá Fram en hefur einnig verið á mála hjá ÍA. Hann kom í Þrótt í sumarglugganum 2024.

„ Ég er að verða samningslaus eftir tímabilið og verð bara taka stöðuna eftir tímabilið. Auðvitað er draumurinn að koma Þrótti upp, en það verður að koma í ljós með hverjum ég spila á næsta ári,” sagði Aron við Fótbolta.net eftir leikinn í kvöld.
Skoraði þrennu í kvöld og er eftirsóttur af félögum í Bestu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Snær: Vona bara að þeir klúðri þessu

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.