29.08.26 - 16:57
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Damir: Virkilega gaman að sjá ungan heimamann fá að upplifa svona stund

Mikael Máni skoraði sigurmarkið í Grindavík í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Damir Muminovic.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík fór langt með að tryggja áframhaldandi veru sína í Lengjudeildinni í dag.

Grindavík vann afar mikilvægan sigur á HK, 4-3, í 21. umferð Lengjudeildarinnar.
Sigurmarkið kom á 92. mínútu en Grindavík hafði komist í 3-0 í leiknum og misst þá forystu niður. Sigurinn þýðir að Grindavík er með örlögin í sínum höndum fyrir lokaumferðina.
Það var Mikael Máni Þorfinnsson, unglingalandsliðsmaður sem fæddur er 2010, sem skoraði sigurmarkið með skalla eftir hornspyrnu í uppbótartíma. Markið var hans fyrsta í meistaraflokki.
Fótbolti.net ræddi við Damir Muminovic sem bar fyrirliðabandið hjá Grindavík í leiknum þar til Viktor Guðberg Hauksson kom inn á.

TENGT EFNI
Lengjudeildin: Vallarmet er Afturelding tryggði sér sæti í Bestu deildinni
„4–3 sigur og sigurmarkið kemur á 90. mínútu. Enn fallegra var að sjá hver steig upp þegar mest á reyndi — heimamaður, fæddur 2010, sem skoraði markið sem tryggði okkur stigin þrjú," segir Damir.
„Þetta er augnablik sem hann mun eflaust muna lengi og virkilega gaman að sjá ungan heimamann fá að upplifa svona stund. Mikael er mikið efni sem á bjarta framtíð fyrir sér, hann hefur eflaust viljað fá fleiri mínútur í sumar, og eðlilega, en hann hefur líka verið þolinmóður og tekið sína sénsa sem hann hefur fengið. Ég vona innilega að við náum að halda honum á næsta tímabili og að hann fái stærra hlutverk hjá okkur."
Damir var ekki sáttur með frammistöðuna í seinni hálfleik eftir mjög góðan fyrri hálfleik.
„Við verðum þó að vera hreinskilnir með okkar frammistöðu. Seinni hálfleikurinn var langt frá því nógu góður hjá okkur og við hleyptum mótherjanum alltof mikið inn í leikinn. Það er eitthvað sem við þurfum að læra af og gera betur."
„En stundum snýst fótboltinn líka um að finna leið til að vinna — og það gerðum við í dag. Að klára leikinn með sigurmarki á 90. mínútu, og það frá einum af okkar ungu heimamönnum, gerði sigurinn aðeins sætari," segir Damir.
Grindavík heimsækir botnlið Ægis í lokaumferðinni.