Fotbolti.net
28.08.26 - 23:02
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

„Pottþétt fullt af fólki sem vill fá mig til baka í Stjörnuna"

Auglýsing
„Pottþétt fullt af fólki sem vill fá mig til baka í Stjörnuna"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

„Mér líður vel, mér fannst við vera frábærir í dag" sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Gróttu, eftir 3-1 tap á útivelli gegn Fylki.

Lestu um leikinn: Fylkir 3 - 1 Grótta

„Mér fannst við vera miklu betri en Fylkir. En okkur er svolítið refsað grimmilega í lokin, ég hélt að við værum að fara að vinna þetta eftir að við jöfnuðum. Við vorum með þvílíkt trukk á þeim, síðan er okkur refsað, grimmilega. Við fáum tvö mörk í andlitið, einstaklingsmistök sem kosta okkur það, svoleiðis er fótboltinn. Mjög ánægður með liðið, góður kraftur í okkur allan leikinn og við gerðum þetta feykivel."

„Við erum mjög nálægt þeim í spilamennsku. Við höfum sýnt það í sumar og líka gegn þessum toppliðum. En síðan er bara þannig að við erum frekar ungt og nýtt lið. Við erum að reyna að vera betri með hverjum leik, stundum færðu góð úrslit og stundum færðu ekki góð úrslit. En frammistaðan í dag var mjög góð og við erum svolítið að horfa á það."

Á Grótta heima í Lengjudeildinni?

„Það er nokkuð ljóst. Núna héldum við okkur í þessari deild, við höfum staðið okkur feykivel í sumar. Strákarnir eru búnir að standa sig frábærlega vel, nú klárum við bara Völsung næstu helgi og fáum góða frammistöðu og góðan leik. Klárum þetta mót með sæmd."

„Við vissum ekki alveg í hvað við vorum að fara. Þetta er sama lið og spilaði í 2. deildinni í fyrra, það gekk ágætlega. Í fyrra var þetta nýtt lið, ungir strákar og strákar sem voru að koma héðan og þaðan, við náðum að búa til ágætis lið."

„Auðvitað tekur tíma að búa til góð lið og vonandi náum við að vera stabílt og gott lið í fyrstu deildinni næstu árin og við vonum það, en það þarf allt að ganga upp."

Það hafa verið sögusagnir um að einhverjir innan Stjörnunnar vilji fá Rúnar aftur sem þjálfara liðsins.

„Ég veit ekkert um það, pottþétt fullt af fólki sem vill fá mig til baka í Stjörnuna, síðan fullt af fólki sem vill það ekki, það er bara eins og það er. Það er bara gaman að því að vera orðaður við þetta frábæra félag."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.