Það náðist á myndbandi á þriðjudag þegar Karim Benzema, leikmaður Real Madrid, sagði liðsfélaga sínum Ferland Mendy um að gefa ekki á Vinicius Jr.
„Ekki senda á hann. Hann er að spila gegn okkur," segir Benzema.
Upptakan er frá leikmannagöngunum í hálfleik í leik Real gegn Borussia Mönchengladbach í Meistaradeildinni á þriðjudag. Leikurinn endaði 2-2.
Vinicius Jr stóð rétt hjá Benzema og Mendy á meðan þeir spjölluðu.
Opta tók saman tölfræði þar sem kemur fram að Benzema hafi ekki gefið neitt á Vinicius eftir leikhlé. Hann gaf þrisvar á hann í fyrri hálfleik, en ekki neitt eftir leikhlé.
Real Madrid tapaði fyrir Shaktar Donetsk í fyrstu umferð riðilsins og fer því afar illa af stað í Meistaradeildinni.
0 - Karim Benzema no le pasó ningún balón a Vinicius Jr en la segunda mitad del encuentro de Champions League ante el Borussia Mönchengladbach (tres en la primera parte). Distancia. pic.twitter.com/f6nBbWi9oP
— OptaJose (@OptaJose) October 28, 2020
Athugasemdir