29.10.26 - 13:00
Enski boltinn
Stjórar sem eru bara óraunhæfir fyrir Man Utd í dag

Fabian Hurzeler með eiginkonu sinni.

Mynd: Instagram

Cesc Fabregas er mjög spennandi stjóri.

Mynd: EPA

Fabian Hurzeler með eiginkonu sinni.

Mynd: Instagram
Manchester United hefur ákveðið að halda tryggð við Michael Carrick þar sem ekki fannst nægilega sterkur kostur til að taka við af honum.
Rætt var um það í Enski boltinn hlaðvarpinu á dögunum að það væru áhugaverðir kostir í boði sem væru óraunhæfir fyrir Manchester United í dag.

„Það er áhugavert að horfa á þetta að það eru Fabian Hurzeler hjá Brighton, Unai Emery hjá Aston Villa og Cesc Fabregas hjá Como. Þessir gæjar eru bara allir óraunhæfir," sagði Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson.
Allir þessir stjórar eru í meira spennandi verkefnum í dag en Man Utd hefur upp á að bjóða, sem er í raun ótrúlegt miðað við stærð félagsins.
„Þeir eru í meira spennandi giggum en Manchester United í dag. Að Como, Brighton og Aston Villa séu meira spennandi gigg segir sitt."
„Það segir þessum eigendum og starfsfólki innanbúðar hvað þeir eru búnir að skíta rækilega í brækurnar," sagði Haraldur Örn Haraldsson.
Hægt er að hlusta á alla umræðuna í spilaranum hér fyrir neðan.