Fotbolti.net
29.10.26 - 13:30
Mate Dalmay

Hjammi.net færist til klukkan 11:00

Hjammi.net færist til klukkan 11:00
Canon

Mynd: Hjammi.net

Á laugardögum er hitað upp fyrir umferð helgarinnar í þættinum Hjammi.net á Youtube.

Þar fær skemmtikrafturinn Hjálmar Örn Jóhannsson til sín góða gesti, góð stemning myndast og léttleikinn er í fyrirrúmi.

Þátturinn færist nú til klukkan 11:00 á laugardögum eftir klukkubreytingu. Hádegisleikirnir á laugardögum hefjast næstu mánuði klukkan 12:30 en í byrjun tímabils var flautað til leiks klukkutíma fyrr.
Næsti þáttur mun því hefjast klukkan 11:00 á laugardag. Átta leikir í úrvalsdeildinni fara fram á laugardag, einn á sunnudag og einn á mánudag.

Á laugardaginn verða ásamt Hjamma þeir Keli, Mike og Bond.

Umferðin í enska boltanum um helgina
laugardagur 31. október
ENGLAND: Premier League
12:30 Chelsea - Man Utd
15:00 Bournemouth - Leeds
15:00 Brentford - Nott. Forest
15:00 Coventry - Sunderland
15:00 Hull City - Ipswich Town
15:00 Man City - Brighton
17:30 Tottenham - Crystal Palace
20:00 Aston Villa - Fulham

sunnudagur 1. nóvember
ENGLAND: Premier League
16:30 Liverpool - Arsenal

mánudagur 2. nóvember
ENGLAND: Premier League
20:00 Newcastle - Everton
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.