29.10.26 - 12:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Formaður Þórs: Það var ekki mín óskastaða að KA færi niður

Þrír spennuþrungnir leikir.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Góð stigasöfnun FH undir lokin kom Sveini Elíasi á óvart.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mikil stemning á heimaleiknum gegn KA.

Á að fjölga í Bestu deildinni?

Sveinn Elías Jónsson, formaður fótboltadeildar Þórs, er á því að það eigi fjölga í 14 lið í efstu deild. Hann sér þá á eftir grönnunum í KA niður í Lengjudeildina.
Sveinn Elías ræddi við Fótbolta.net í vikunni.

Hvaða tilfinningar komu upp þegar KA féll?
„Það breytti í raun engu hjá mér. Þór-KA leikirnir stækkuðu stemninguna í bænum svo rosalega mikið. Ég hélt að FH myndi ekki ná öllum þessum sigrum í lok móts og ég reiknaði með því að við værum að fara í úrslitaleik á móti FH um hvort liðið myndi halda sér uppi. Ég sá það fyrir mér að sigur hjá bæði Þór og KA í lokaumferð myndi tryggja báðum sæti í efstu deild."
„Heimaleikurinn gegn KA var okkar langstærsti leikur í sumar og þó svo að við höfum ekki fengið neitt úr þeim leikjum nema fjárhagslega úr heimaleiknum, þá var stemningin í bænum þannig að mér fannst þessir leikir stækka fótboltann í bænum. Það hefur ekki verið svona stórt fótboltasumar á Akureyri í fjölda ára. Mér fannst fegurð í því og það var ekki mín óskastaða að KA færi niður. En þegar ljóst varð að annað liðið yrði að fara, þá var það að sjálfsögðu orðin mín óskastaða að þeir færu niður," segir formaðurinn sem lék bæði með Þór og KA á sínum fótboltaferli.
Vill 14 liða efstu deild
Svenni var spurður út í fyrirkomulagið á Bestu deildinni.
„Ég átti samtal við Davíð Viðars fyrir leikinn gegn FH og við ræddum um þetta. Ég sagði þá og stend við það í dag, að alveg óháð því hvort við værum uppi eða niðri eftir lokaleikinn þá stæði ég frekar með 14 liða deild."
„Ég held að það verði alltaf erfitt að fá einhverja rosa spennu í alla leiki. Það sem ég held samt að 14 liða efsta deild myndi gera væri enn frekara tækifæri fyrir unga leikmenn að sýna sig. Það er alveg gríðarlegur aðstöðumunur á milli Bestu deildar og Lengjudeildar. Sennilega eru þau félög sem hafa verið í Bestu deildinni til í að halda því þannig því tekjurnar á hvert lið munu lækka ef það er fjölgað í 14 lið."
„Ég held að fjölgun myndi hjálpa fleiri liðum að gera það sem við gerðum í sumar, sem heppnaðist, að spila ungum strákum. Ef við erum að spila ungum strákum í Bestu deild, þá erum við að búa til söluvörur og hjálpa félögum að verða sjálfbærari í rekstri. Núna fáum við Aftureldingu og Þrótt upp, tvö félög með frábært yngri flokka starf. Ég myndi segja að KA og HK í Lengjudeildinni, bæði með frábært yngri flokka starf, séu félög sem eiga heima í 14 liða efstu deild þegar ég horfi í það hversu margir leikmenn verða til hjá félögunum, leikmenn sem mér finnst að eigi að geta fengið tækifæri í efstu deild."
„FH ætlaði að keyra á ungum strákum en urðu að bakka frá því á miðju tímabili af því þeir tímdu ekki að falla, höfðu ekki efni á því því að fara niður um deild er rosalegt fjárhagslegt högg," segir Sveinn Elías.