Mason Greenwood skoraði fyrsta mark leiksins er Manchester United lagði Brighton, 0-3, í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Greenwood fékk boltann frá Aaron Wan-Bissaka á hægri vængnum og keyrði inn á vítateiginn, tók skærin sín og skoraði framhjá Matt Ryan í marki Brighton.
Greenwood fékk boltann frá Aaron Wan-Bissaka á hægri vængnum og keyrði inn á vítateiginn, tók skærin sín og skoraði framhjá Matt Ryan í marki Brighton.
Hann tileinkaði Angel Gomes, fráfarandi samherja sínum, markið í kvöld en Gomes er að fara á frjálsri sölu frá United þar sem samningur hans er að renna út. Gomes tjáði sig um gjörning Greenwood á Instagram í kvöld.
„Engin orð! Ég elska þig bróðir þú frábæri frábæri leikmaður, takk fyrir að tileinka mér markið." Greenwood setti sjálfur færslu á Instagram og skrifaði: „Loforð er loforð A."
Gomes er nítján ára miðjumaður sem verður tvítugur í ágúst. Hann og Greenwood hafa leikið saman hjá unglingaliðum United.
Athugasemdir