30.06.20 - 08:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mynd: Kjartan er í sóttkví og horfði því af svölunum heima

Kjartan ásamt Fylkis fánunum á svölunum.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Kjartan ásamt Fylkis fánunum á svölunum.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Leikmenn og þjálfarar kvennaliðs Fylkis eru í sóttkví vegna Covid-smits í leikmannahópi félagsins. Þeir gátu því ekki stutt sitt lið úr stúkunni þegar Fylkir tók á móti Gróttu í gær.
Kjartan Stefánsson er þjálfari aðalliðssins og var hann með þokkalegast útsýni yfir Würth völlinn í gær þó að hann hafi ekki getað verið í stúkunni. Hann horfði á leikinn af svölunum heima hjá sér eins og sést á meðfylgjandi mynd.
Fylkir sigraði leikinn, 2-0, þar sem Valdimar Þór Ingimundarsson skoraði bæði mörk heimamanna.
Kvennalið Fylkis átti að mæta Þór/KA á útivelli í dag en þeim leik hefur verið frestað vegna smitsins.
Fylkir sigraði leikinn, 2-0, þar sem Valdimar Þór Ingimundarsson skoraði bæði mörk heimamanna.
Kvennalið Fylkis átti að mæta Þór/KA á útivelli í dag en þeim leik hefur verið frestað vegna smitsins.
