Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 30. júní 2022 16:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ferðaðist 600 kílómetra til að sjá Glódísi spila - „Algjört krútt"
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ungur strákur vakti athygli í gær á Grodzisk leikvanginum í Póllandi þegar Ísland mætti Póllandi í vináttulandsleik.

Strákurinn ungi var með borða á leiknum sem á stóð: „Glódís, draumur minn er að fá treyju þína."

Lestu um leikinn: Pólland 1 -  3 Ísland

Glódís Perla Viggósdóttir er leikmaður Bayern Munchen og íslenska kvennalandsliðsins. Hún lék allan leikinn í gær í hjarta varnarinnar og var til viðtals eftir leikinn.

„Hann er bara algjört krútt þessi strákur. Hann kom á hótelið í gær, búinn að ferðast einhverja 600 kílómetra til að mæta á þennan leik. Það er alltaf gaman þegar það er einhver að styðja mann og fylgjast með mann. Við fögnum því allar að það sé einhver sem fylgir okkur og vill horfa," sagði Glódís.

Hér að neðan má sjá viðtalið sem var tekið við Glódísi í heild sinni.

Glódís: Gott að fá að spila á móti svona hörkuleikmanni rétt fyrir EM
Athugasemdir
banner
banner