Fotbolti.net
30.06.26 - 23:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Deschamps unnið flesta leiki í sögu HM

Deschamps unnið flesta leiki í sögu HM
Canon

Mynd: EPA

Frakkland er komið í 16-liða úrslit eftir öruggan 3-0 sigur á Svíþjóð í 32-liða úrslitum á HM í kvöld.

Didier Deschamps, landsliðsþjálfari Frakka, er þá sá þjálfari sem hefur unnið flesta leiki á heimsmeistaramóti.

Deschamps hefur þjálfað liðið frá 2012 en hann mun hætta eftir mótið. Hann hefur stýrt liðinu á fjórum heimsmeistaramótum. Hann stýrði liðinu til sigurs árið 2018 en liðið tapaði í úrslitum fjórum árum síðar.
Enginn skorað fleiri mörk en Mbappe í útsláttakeppni
TENGT EFNI

Enginn skorað fleiri mörk en Mbappe í útsláttakeppni

Kylian Mbappe skoraði tvennu í kvöld og hefur skorað tíu mörk í útsláttakeppni á HM á ferlinum en enginn hefur skorað jafn mörg mörk á þessu stigi. Þá hefur hann skorað 18 mörk á heimsmeistaramóti en aðeins Lionel Messi, með 19 mörk, hefur skorað fleiri.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.