Fotbolti.net
30.06.26 - 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Óvæntur kvartett úr enska boltanum vinnur saman í C-deild furstadæmanna

Óvæntur kvartett úr enska boltanum vinnur saman í C-deild furstadæmanna
Canon

Mynd: Arslan Visuals

Danny Simpson var í dag tilkynntur sem leikmaður Arabian Falcons í Sameinuðu arabísku furstadæmanna. Liðið spilar í þriðju efstu deild og kemur Simpson einnig til með að vera í þjálfarateymi liðsins.

Simspson, sem er 39 ára, er uppalinn hjá Manchester United en er þekktastur fyrir að hafa unnið úrvalsdeildina með Leicester tímablið 2015-16. Hægri bakvörðurinn lagði skóna á hilluna 2024 en tekur takkaskóna með sér til furstadæmanna.
Það er ekki alveg út í bláinn að Simpson sé mættur til fálkanna því þar voru fyrir þeir Jonjo Shelvey, Jason Puncheon og Ravel Morrison.

Félagið er í Dúbaí, Shelvey er stjóri liðsns og Puncheon meðeigandi og yfirmaður fótboltamála. Morrison er svo fyrirliði liðsins.

Shelvey er fyrrum leikmaður Liverpool og Newcastle svo dæmi séu tekin, Puncheon lék með Crystal Palace og Southampton og Ravel Morrison (1993) er fyrrum ungstirni sem uppalinn er hjá Manchester United en náði ekki í gegn þar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.