30.07.04 - 14:02
Diego til Porto (Staðfest)




Evrópumeistarar Porto hafa keypt brasilíska undrabarnið Diego frá Santos í Brasilíu. Honum er ætlað að fylla það skarð sem Deco skildi eftir sig en hann fór til Barcelona eins og öllum ætti að vera kunnugt um.
Diego er aðeins 19 ára gamall en er talin vera eins bjartasta stjarnan sem skinið hefur í Brasilíu í háa herrans tíð. Hann kostar um 6 milljónir punda en Diego neitaði að skrifa undir nýjan samning við Santos og því var hann seldur.
Hann var nálægt því að ganga til lið við Tottenham en sú kauð féllu upp fyrir á síðustu stundu. Diego varð Suður-Ameríku meistari með Brasilíumönnum í Perú á dögunum.
Hann var nálægt því að ganga til lið við Tottenham en sú kauð féllu upp fyrir á síðustu stundu. Diego varð Suður-Ameríku meistari með Brasilíumönnum í Perú á dögunum.
